Summary: | Viðfangsefni rannsóknarinnar var að skoða áhrif tónlistarmenntunar á námsárangur grunnskólanema. Áhrif tónlistarmenntunar eru umdeild og gefa niðurstöður rannsókna á því sviði ólíkar niðurstöður. Til þess að skoða þessi áhrif voru einkunnir nemenda Brekkuskóla í íslensku og stærðfræði skoðaðar sjö annir aftur í tímann. Nemendur Brekkuskóla sem skráðir voru til náms í Tónlistarskólanum á Akureyri lentu í tónlistarhóp, 44 talsins og nemendur sem ekki voru skráðir í Tónlistarskólann á Akureyri lentu í samanburðarhóp einnig 44 talsins. Niðurstöður rannsóknarinnar voru að tónlistarhópurinn var með marktækt hærri meðaleinkunn í stærðfræði F(1, 86) = 5,2, p < ,05. en ekki í íslensku. Munur á stærðfræðieinkunnum hópanna hélst stöðugur eftir því sem leið á tónlistarnámið á meðan munur hópanna í íslensku minnkaði. Niðurstöðurnar benda til þess að það séu tengsl á milli tónlistarnáms og meiri stærðfræðilegrar getu.
|