Áhrif tónlistarnáms á námsárangur barna í stærðfræði og íslensku

Viðfangsefni rannsóknarinnar var að skoða áhrif tónlistarmenntunar á námsárangur grunnskólanema. Áhrif tónlistarmenntunar eru umdeild og gefa niðurstöður rannsókna á því sviði ólíkar niðurstöður. Til þess að skoða þessi áhrif voru einkunnir nemenda Brekkuskóla í íslensku og stærðfræði skoðaðar sjö a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjalti Jónsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3176
Description
Summary:Viðfangsefni rannsóknarinnar var að skoða áhrif tónlistarmenntunar á námsárangur grunnskólanema. Áhrif tónlistarmenntunar eru umdeild og gefa niðurstöður rannsókna á því sviði ólíkar niðurstöður. Til þess að skoða þessi áhrif voru einkunnir nemenda Brekkuskóla í íslensku og stærðfræði skoðaðar sjö annir aftur í tímann. Nemendur Brekkuskóla sem skráðir voru til náms í Tónlistarskólanum á Akureyri lentu í tónlistarhóp, 44 talsins og nemendur sem ekki voru skráðir í Tónlistarskólann á Akureyri lentu í samanburðarhóp einnig 44 talsins. Niðurstöður rannsóknarinnar voru að tónlistarhópurinn var með marktækt hærri meðaleinkunn í stærðfræði F(1, 86) = 5,2, p < ,05. en ekki í íslensku. Munur á stærðfræðieinkunnum hópanna hélst stöðugur eftir því sem leið á tónlistarnámið á meðan munur hópanna í íslensku minnkaði. Niðurstöðurnar benda til þess að það séu tengsl á milli tónlistarnáms og meiri stærðfræðilegrar getu.