Summary: | Málþing um opinn aðgangÞriðjudaginn 13. apríl kl. 15-17 var haldið málþing um opinn aðgang að vísindalegu efni í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Málþingið hófst á því að Sólveig Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Landspítalans, kynnti opinn aðgang. Aðrir fyrirlesarar voru Peter Suber, einn helsti talsmaður opins aðgangs í Bandaríkjunum, Katrín Valgeirsdóttir frá RANNÍS og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík. Málþingið var opið öllum og aðgangur ókeypis. Dagskrá málþingsins er að finna á heimasíðu opins aðgangs á Íslandi openacces.is. Þar er einnig hægt að skoða upptöku af málþinginu og glærur fyrirlesara.
|