Jarðfræði og ummyndun í jarðhitakerfinu við Hverahlíð á Hellisheiði

Jarðhitakerfið í Hverahlíð er staðsett sunnan við Hengilsmegineldstöðina og við austurjaðar sprungusveims Hengils. Orkuveita Reykjavíkur hefur borað fimm rannsóknarholur á svæðinu til að kanna möguleika á orkuvinnslu; þar af eru þrjár teknar til sérstakrar skoðunar í þessu riti. Holurnar sem eru 200...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Steinþór Níelsson 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9894
Description
Summary:Jarðhitakerfið í Hverahlíð er staðsett sunnan við Hengilsmegineldstöðina og við austurjaðar sprungusveims Hengils. Orkuveita Reykjavíkur hefur borað fimm rannsóknarholur á svæðinu til að kanna möguleika á orkuvinnslu; þar af eru þrjár teknar til sérstakrar skoðunar í þessu riti. Holurnar sem eru 2000-2800 m djúpar sýna jarðhitakerfi með 200-320°C hita neðan við 600-1000 m dýpi. Hraunlög eru ráðandi í norður- og austurhluta svæðisins en í suður- og vesturhluta svæðisins eru móbergsmyndanir ráðandi. Basalt er ráðandi bergtegund á svæðinu en þróað basalt og basaltískt andesít finnst í jarðlagastaflanum. Ummyndun er frá algerlega fersku bergi í köldu grunnvatnskerfi neðan við yfirborð í gegnum seólítabelti og þaðan inn í jarðhitaummyndun með klóríti, epídóti, wollastoníti og aktínólíti. Samband milli ummyndunarhita og berghita er mismunandi, góð fylgni er í HE-21, HE-26 virðist kólna niður á um 1500 m dýpi og HE-36 sýnir hitaviðsnúning og kælingu neðan við 1300 miðað við ummyndun. Sýni af borholusvarfi voru tekin til efnagreiningar úr níu holum á Hengilssvæðinu. Þrátt fyrir ummyndun sést vel að efnafræðileg þróun er samskonar og á Reykjanesskaga. Sýnin eru dæmigerð fyrir þróun bergs í rekbeltunum og spanna allt basaltsviðið. Niðurstöður sýna að Hengilseldstöðin framleiðir aðallega ólivín-þóleiít en einnig þróaðra berg sem finnst ekki á Reykjanesskaga. The Hverahlid high-temperature system is located in the southern sector of the Hengill central volcano in SW-Iceland. Reykjavik Energy has drilled five exploration wells into the geothermal reservoir in order to study its potential for electrical production, three of them are studied here. The 2000-2800 m long wells show a high-temperature system of 200-320°C below 600-1000 m depth. Lava successions dominate the strata in the northern and eastern part of the field but hyaloclastites are more frequent in the western and southern part. Hydrothermal alteration ranges from totally fresh rocks in the overlying cold groundwater system through zeolite assemblages and into ...