Búorka

Samfara hækkandi verðlagi á jarðefnaeldsneyti hér á landi hefur orðið síaukin vakning í því að litið verði til annarra kosta til að mæta þörf landsmanna fyrir eldsneyti Einn þessara kosta er að auka innlenda framleiðslu metans. Metanframleiðsla er byggð á lífrænu ferli er kallast loftfirrt niðurbrot...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Hlynur Ingólfsson 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9871
Description
Summary:Samfara hækkandi verðlagi á jarðefnaeldsneyti hér á landi hefur orðið síaukin vakning í því að litið verði til annarra kosta til að mæta þörf landsmanna fyrir eldsneyti Einn þessara kosta er að auka innlenda framleiðslu metans. Metanframleiðsla er byggð á lífrænu ferli er kallast loftfirrt niðurbrot eða gerjun. Hreint metan fæst ekki með slíku niðurbroti þar sem frá því leggur svokallað lífgas (hauggas eða biogas á engilsaxnesku) sem þarft er að vinna frekar til að fá metan af ásættanlegum hreinleika. Þegar farið er í slíka vinnslu þarf að taka tillit til ótal breytna og þar sem takmörkuð reynsla er af slíku hér á landi þá er nauðsynlegt að sækja þekkingu er varðar kostnað, framleiðsluleiðir og tækniuppsetningu til annarra ríkja. Í mörgum ríkjum Norður Evrópu er þannig að finna áratuga langa reynslu lífgasframleiðslu og þar er að finna ótal lífgasver af ýmsum gerðum. Mögulegt er að setja upp lífgasvers að erlendri fyrirmynd hér á landi því hér að finna nokkuð magn hráefnis sem nýta mætti til vinnslunnar frá ýmissi starfsemi svo sem landbúnaði, en einnig í sorpi frá heimilum og iðnaði. Ef áfram vinna á lífgasið í hreinna metan þá er ólíklegra að rekstur minni framleiðslueininga hér á landi verði hagkvæmur og skili fjárhagslegum ágóða. Stærri framleiðslueiningar eru líklegri til að skila hagnaði í skjóli stærðarhagkvæmni þótt slíkt sé ekki öruggt og þær geti einnig verið óhagkvæmar. Lífgas og metan gæti samt sem áður verið fýsilegur og sjálfbær framtíðarkostur eldsneytis hvort sem litið er til hagrænna, félagslegra eða umhverfislegra þátta. With increasing fossil fuel prices in Iceland then there has been an awakening in looking towards other options in meeting the populations demand for fuel, one of these options being an increase in domestic production of methane. The production of methane is based on a biological process called anaerobic digestion and is alike other things biological; dynamic. The raw product of the anaerobic digestion is however not pure methane as it creates biogas which has to be processed ...