Myndlistarkennsla í grunnskólum : fagmiðuð myndlistarkennsla og samþætting

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er ætlað að styðja við hugmyndahandbókina 21 VERKEFNI Í MYNDLIST, sem ætluð er grunnskólakennurum. Ritgerðin fjallar um gildi listar í uppeldi barna; hvernig listuppeldi hefur áhrif á viðhorf barna gagnvart listinni...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Maríanna Ragnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/985
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er ætlað að styðja við hugmyndahandbókina 21 VERKEFNI Í MYNDLIST, sem ætluð er grunnskólakennurum. Ritgerðin fjallar um gildi listar í uppeldi barna; hvernig listuppeldi hefur áhrif á viðhorf barna gagnvart listinni og hvernig þau læra meðvitað að skapa list, njóta hennar og lesa í list og menningu sem eru þættir í daglegu lífi þeirra. Með því að örva sköpunarkraft og ímyndunarafl barna með hugrænum óhlutlægum kennsluaðferðum læra þau að tjá sig, mynda sér skoðanir, færa fyrir þeim rök og þekkja tilfinningar sínar. Ein leið að þessu marki er fagmiðuð myndlistarkennsla, FMMK. Hugmyndafræði stefnir að skipulögðu og öguðu listnámi sem hluta af almennu námi nemenda, hvaða hæfileikum sem þeir eru gæddir. Aðalnámskrá grunnskóla tekur mið af þessari hugmyndafræði þar sem hún leggur áherslu á fjórskiptinguna sem FMMK byggist á, þ.e. listasögu, listgagnrýni, myndgerð og fagurfræði og svo eftirfylgni markmiða með námsmati. Fjórskiptinguna er ekki aðeins hægt að nota í myndlist, heldur flestum námsgreinum og er þá auðvelt að samþætta myndlistina við aðrar greinar vegna þess hve skipulögð og markviss hún er. Myndlist kemur fyrir í flestum námsgreinum í einhverju formi, verkefni flestra námsgreina er hægt að útfæra á myndrænan hátt eða njóta aðstoðar myndlistarinnar til þess. Með þessu móti er hægt er að nálgast viðfangsefnin á breiðari grunni og gefa nemendum nýja sýn á námsgreinarnar sem unnið er með.