Sá á kvölina sem á völina : mismunandi aðferðir við námsmat

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um helstu námsmatsaðferðir sem notaðar eru í íslenskum grunnskólum í dag ásamt því sem fjallað er um nokkrar aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms hér á landi. Í framhaldi af því eru kostir og gallar aðferða...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kolbrún Sigurgeirsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/983
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um helstu námsmatsaðferðir sem notaðar eru í íslenskum grunnskólum í dag ásamt því sem fjallað er um nokkrar aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms hér á landi. Í framhaldi af því eru kostir og gallar aðferðanna skoðaðir út frá heimildum og helstu hugtökum námsmats gerð skil. Settar voru fram tvær meginspurningar sem leitað er svara við í heimildum um efnið. Spurningarnar eru: Er ein námsmatsaðferð betri en önnur? Hvernig er námsmat gert sýnilegt fyrir nemendum? Helstu niðurstöður eru að í raun er ekki nein ein aðferð betri en önnur heldur þarf kennarinn að kunna skil á sem flestum aðferðum til þess að koma til móts við þarfir einstaklingsins. Til þess að hægt sé að gera námsmat sýnilegra fyrir nemendur þarf að leyfa þeim að taka þátt í að móta matið í samræmi við námsmarkmið skólans og er það gert í formi sjálfsmats og jafningjamats.