Brúum bilið : námsörðugleikar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Meginmarkmið verksins var að öðlast vitneskju og betri þekkingar á námsörðugleikum. Margir nemendur glíma við örðugleika í námi á skólagöngu sinni. Í þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ása Björg Freysdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/964
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Meginmarkmið verksins var að öðlast vitneskju og betri þekkingar á námsörðugleikum. Margir nemendur glíma við örðugleika í námi á skólagöngu sinni. Í þessu verki er fjallað um námsörðugleika en þeir geta verið margvíslegir. Má þar nefna ofvirkni, athyglisbrest, einhverfu, hegðunarörðugleika og þroskahömlun. Bráðger börn og nemendur í áhættuhóp geta einnig fallið undir þá skilgreiningu að vera með námsörðugleika. Erfiðleikar þessir verða skoðaðir með tilliti til einkenna, orsaka og tíðni. Það er skylda grunnskóla að mennta nemendur sína á árangursríkan hátt og skapa nemendum námsaðstæður sem henta hverjum og einum. Til að svo megi vera verður kennarinn að þekkja nemendur sína vel, þarfir þeirra og eiginleika. Kennarinn þarf að vera vel undirbúinn fyrir kennslu og þekkja vel til þeirra örðugleika sem geta mætt honum. Því hefur hér einnig verið valið að fjalla um úrræði sem kennarar geta beitt við kennslu nemenda með námsörðugleika. Einstaklingsnámsskrá sem löguð er að námsþörfum einstakra nemenda og unnin er í samráði við foreldra er ein leið til að auðvelda bæði nemendum og kennurum nám og kennslu. Niðurstaða þessarar vinnu er sú að einkenni námsörðugleika eru margvísleg og misjöfn og ekki alltaf auðsjáanleg þ.e. oftar en ekki eru einkennin hulin sjónum okkar. Það þýðir að kennari þarf að vera mjög vel upplýstur um þessa örðugleika til að koma bæði augum á þá og mæta þörfum nemenda sem skyldi. Námsörðugleikar eru algengari en við gerðum okkur grein fyrir og verða kennarar að geta tekið við nemendum með námsörðugleika og mætt þörfum þeirra á réttan hátt.