Nám fyrir einn og alla : einstaklingsmiðun - teymisvinna - leiðir til árangurs

Verkefnið er lokað Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. prófs í kennaradeild við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Kjarni í ritgerðarinnar er umfjöllun um einstaklingsmiðað nám og þær leiðir sem taldar eru árangursríkar til einstaklingsmiðunar. Til að styðja við það er kenningum Car...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg María Aadnegard
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9576
Description
Summary:Verkefnið er lokað Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. prófs í kennaradeild við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Kjarni í ritgerðarinnar er umfjöllun um einstaklingsmiðað nám og þær leiðir sem taldar eru árangursríkar til einstaklingsmiðunar. Til að styðja við það er kenningum Carol Ann Tomlinson um einstaklingsmiðað nám m.a. gerð skil, en hún er ein af þeim fræðimönnum sem hefur fjallað mikið um einstaklingsmiðað nám og kenningar hennar hafa haft töluverð áhrif á þróun þess hérlendis. Þá er einnig fjallað um teymisvinnu kennara sem leið til að einstaklingsmiða nám barna. Ritgerðin er unnin út frá fræðilegum heimildum og eigindlegri tilviksrannsókn sem gerð var í 4. bekk í einum grunnskóla á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að ná fram markmiðum einstaklingsmiðunar í gegnum teymisvinnu kennara. Markmiðið með rannsókninni var að skoða hvaða leiðir kennararnir nota til að einstaklingsmiða nám og hvort þær leiðir samræmist fræðilegum skilgreiningum um einstaklingsmiðun. Gengið var út frá tveimur meginspurningum: Að hve miklu leyti ná kennarar markmiðum um einstaklingsmiðað nám þar sem gengið er út frá teymisvinnu? Og að hve miklu leyti er samræmi í vinnubrögðum kennara og skilningi þeirra á einstaklingsmiðuðu námi og fræðilegum skilgreiningum um einstaklingsmiðun? Niðurstöðurnar leiddu í ljós að með teymisvinnunni ná kennarar að töluverðu leyti markmiðum um einstaklingsmiðað nám. Vinnubrögð kennara og skilningur þeirra á einstaklingsmiðun hefur ákveðin samhljóm með kenningum Tomlinson um einstaklingsmiða nám. Samt sem áður eru vísbendingar um að bráðgerir nemendur fái síður nám við hæfi og vinna mætti enn frekar að einstaklingsmiðun.