Fámenn fagmiðuð myndlistakennsla : könnun á myndlistakennslu í fámennum grunnskólum Þingeyjarsýslna

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur verkefnisins var að varpa ljósi á hvort myndlistakennsla er kennd á fagmiðaðan hátt í fámennum íslenskum grunnskólum eins og núgildandi aðalnámskrá í listum segir til um, nú eftir að nokkur reynsla er komin á núgildandi aðalnám...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/957
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur verkefnisins var að varpa ljósi á hvort myndlistakennsla er kennd á fagmiðaðan hátt í fámennum íslenskum grunnskólum eins og núgildandi aðalnámskrá í listum segir til um, nú eftir að nokkur reynsla er komin á núgildandi aðalnámskrá. Leiddar eru líkur að því að kennsluaðferðin Discipline Based Art Education, (DBAE), sem þýtt hefur verið fagmiðuð myndlistakennsla, henti vel til þess að ná fram þeirri fagmiðuðu myndlistakennslu, sem stefnt er að í Aðalnámskrá grunnskóla, Litgreinar frá árinu 1999. Ritgerðin er byggð upp á köflum um íslenskar aðalnámskrár fyrr og nú, fagmiðað myndlistanám og fámenna grunnskóla. Í lokin er kafli um könnun sem höfundur gerði á myndlistakennslu í fámennum grunnskólum og umræður um niðurstöður. Gagna var aflað með því að senda spurningalista, til aðila sem sáu um myndlistakennslu í fámennum grunnskólum í Þingeyjarsýslum skólaárið 2003-2004. Spurningalistinn var saminn með það fyrir augum að athuga hverjir kenndu myndlist í fámennum grunnskólum, og hvort þeir kenndu á fagmiðaðan hátt. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að óvíða eða hvergi í fámennum skólum í Þingeyjarsýslu sé hugmyndafræði fagmiðaðrar myndlistakennslu framfylgt öllum þáttum, en víða megi greina viðhorf og verklag sem vísi í þá átt. Flestir þátttakenda lögðu ekki jafna áherslu á fagþætti myndlistar, en kennsluaðferðin DBAE gerir ráð fyrir að það sé gert. Eins nota flestir tölvutækni lítið við myndlistakennslu en aðalnámskráin leggur töluverða áherslu á hana. Einnig sögðust um þriðjungur aðspurða, að ekki væri til stefna í skólanum um myndlistakennslu sem er grundvöllur fagmiðaðar myndlistakennslu.