Félagsfælni og upplifuð streita á meðal staðar- og fjarnema við Háskólann á Akureyri

Verkefnið er lokað Félagsfælni virðist byrja snemma á lífsleiðinni og einkennist af miklum kvíða og hræðslu við að vera innan um annað fólk. Félagsfælni fylgja bæði líkamleg og andleg einkenni sem eru meðal annars mikil svitamyndun, ör hjartsláttur, mikill ótti og yfirliðstilfinning. Einstaklingar m...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Steinarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9525
Description
Summary:Verkefnið er lokað Félagsfælni virðist byrja snemma á lífsleiðinni og einkennist af miklum kvíða og hræðslu við að vera innan um annað fólk. Félagsfælni fylgja bæði líkamleg og andleg einkenni sem eru meðal annars mikil svitamyndun, ör hjartsláttur, mikill ótti og yfirliðstilfinning. Einstaklingar með félagsfælni eiga erfiðara með að vera í nánu sambandi og eiga erfitt með að sækja skóla eða vinnu. Félagsfælni er á meðal algengustu geðraskana nútímans og er algengi félagsfælni talin vera á bilinu 1-16%. Konur eru líklegri til að þjást af félagsfælni en karlar eða þrjár konur á móti tveimur körlum. Í þessari rannsókn var skoðaður munur á staðar- og fjarnemum við Háskólann á Akureyri hvað varðar félagsfælni og upplifaða streitu. Alls svöruðu 104 spurningarlistunum þremur af þeim 300 nemum sem hann var sendur út til (svarhlutfall 35%). Listarnir sem notaðir voru til að mæla félagsfælni voru SIAS (Social Interaction Anxiety Scale) og SPS (Social Phobia Scale).Til að kanna streitu og fylgni á milli félagsfælni og streitu var notaður Streitulisti Cohens-PSS (Social Phobia Scale). Fjarnemar skoruðu hærra á öllum listum samanborið við staðarnema en þessi munur mældist ekki marktækur. Marktæk fylgni var á milli félagsfælni og upplifaðrar streitu. Þýðing niðurstaðna í stærra samhengi er rædd í umræðukafla. Abstract Social phobia seems to start at an early age and is characterized by excessive and persistent fear and anxiety provoked by exposure to social or performance situations. Social phobia has physical and psychological symtoms like sweating, rapid heartbeat and anxiety. People with social phobia have difficulties beeing in close relationship and difficulties attending school or a job. Social phobia is among the most common mental illnesses today. Lifetime and prevalence rates range from 1% to 16% and women are more likely than men to have social phobia. This study examined if there where differences between local students and distance learning students within the University of Akureyri in terms of social phobia ...