Reynsla og bjargráð brotaþola nauðgunar og gildi og ábyrgð samfélagsins

Tilgátur rannsóknarinnar voru, brotaþolar nauðgunar notast frekar við reynsluforðunarbjargráð heldur en tilfinningamiðuð bjargráð. Seinni tilgátan var að yngri kynslóðin er móttækilegri fyrir gildum samfélagsins í sambandi við kynlíf en þeir sem eldri eru. Á Íslandi, eins og annarsstaðar, eru brotaþ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elísabet Þórunn Jónsdóttir, Eva Dröfn Möller 1982-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9524
Description
Summary:Tilgátur rannsóknarinnar voru, brotaþolar nauðgunar notast frekar við reynsluforðunarbjargráð heldur en tilfinningamiðuð bjargráð. Seinni tilgátan var að yngri kynslóðin er móttækilegri fyrir gildum samfélagsins í sambandi við kynlíf en þeir sem eldri eru. Á Íslandi, eins og annarsstaðar, eru brotaþolar kynferðisofbeldis mjög viðkvæmt umræðuefni, en samt sem áður er gríðarlega mikilvægt að koma því ofar í umræðuna. Ákveðið var að hleypa lesendum inn í hugarheim brotaþola nauðgunar og voru tekin viðtöl við fjórar konur sem gáfu sér dulnefni. Allar kærðu þær sína brotamenn en ekki voru taldar nægar sannanir til staðar til að sakfella þá. Í almennum hegningarlögum á Íslandi er ekki útlistað hvað nákvæmlega skilgreinist sem nauðgun og eru lögin miðuð útfrá brotamanni en ekki brotaþola. Af þessu ástæðum getur verið að brotaþolar nái sjaldan sínum kærum fram. Almennar niðurstöður úr þessum viðtölum voru að allir brotaþolarnir notuðust við reynsluforðunarbjargráð eftir atburðinn. Þessi bjargráð geta haft víðtæk neikvæð áhrif til langs tíma og geta ýtt undir ýmis geðræn vandamál eins og þunglyndi og kvíða (Hayes og fél., 2004). Könnun var gerð á Glerártorgi þar sem unnið var með hentugleikaúrtak. 200 einstaklingar tóku þátt í könnuninni frá aldrinum 14-81. Áhugaverðar niðurstöður komu í ljós jafnvel þótt aðeins væru spurðar tvær spurningar. Almennar niðurstöður úr könnuninni voru, að því eldri sem einstaklingarnir voru því líklegri voru þeir að telja daður og kossar vera samþykki fyrir kynlífi og karlmenn voru líklegri til þess að telja sérstakan klæðnað ýta undir nauðgun. The hypothesis of this research were, rape victims use experiential avoidance coping rather then emotion focused coping. The second hypothesis was that the younger generation is more receptive towards social values about sex then the older generation. In Iceland, as elsewhere, rape victims are a very delicate subject, but nevertheless extremely important to get it higher up the debate. It was deceided to let readers in to the mind of a rape victim ...