Lykill að betra lífi : hugmyndafræði Gentle Teaching

Viðfangsefni þessarar heimildarritgerðar er að fjalla um breytingar sem átt hafa sér stað hvað varðar þjónustu við fatlað fólk á undanförnum áratugum og hugmyndafræði Gentle Teaching sem hefur verið þýdd “Nærfærnisnálgun” á íslensku. Sú hugmyndafræði snýst um að mæta einstaklingum án fyrirfram gefin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gestur Guðrúnarson
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9409
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar heimildarritgerðar er að fjalla um breytingar sem átt hafa sér stað hvað varðar þjónustu við fatlað fólk á undanförnum áratugum og hugmyndafræði Gentle Teaching sem hefur verið þýdd “Nærfærnisnálgun” á íslensku. Sú hugmyndafræði snýst um að mæta einstaklingum án fyrirfram gefinnar niðurstöðu á viðbrögðum og að vera tilbúinn til að gefa af sér og tengjast viðkomandi nánum böndum. Til þess að skoða hvort aðferðin geti haft áhrif á að bæta lífsgæði fólks með fötlun er byrjað á því að skoða hugmyndafræðileg líkön og hvaða áhrif þau hafa haft á þjónustu við þennan hóp. Í tengslum við þessa umfjöllun er innihaldi mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna (S.Þ) lýst og önnur lykilhugtök eins og valdefling, sjálfsákvörðunarréttur og lífsgæði skoðuð. Búsetuáætlun Akureyrarbæjar frá árinu 2003 verður skoðuð og hvernig hugmyndafræðin, mannréttindi og önnur lykilhugtök komi þar inn. Nærfærnisnálgun er kynnt til sögunnar og hvernig nálgunin falli að markmiðum og stefnu Akureyrarbæjar í því starfi með fólki með fötlun. Þetta verkefni er framlag til umræðu um Nærfærnisnálgun og að leggja til þekkingu til þess að þróa og bæta vinnubrögð við þjónustu fólks með fötlun á Akureyri.