Gæði og umbætur í lagasetningu: Með sérstakri áherslu á samspil Alþingis og ráðuneyta

Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á tækifæri til umbóta í lagasetningu á Íslandi með sérstakri áherslu á samspil Alþingis og ráðuneyta. Gæðamál á Íslandi eru skoðuð, hvaða kröfur séu gerðar til innihalds laga annars vegar og lagasetningarferlisins hinsvegar. Við þá yfirferð eru lagafrumv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhannes Már Sigurðarson 1976-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9408
Description
Summary:Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á tækifæri til umbóta í lagasetningu á Íslandi með sérstakri áherslu á samspil Alþingis og ráðuneyta. Gæðamál á Íslandi eru skoðuð, hvaða kröfur séu gerðar til innihalds laga annars vegar og lagasetningarferlisins hinsvegar. Við þá yfirferð eru lagafrumvörp ríkisstjórnarinnar höfð til hliðsjónar þar sem um 90% af samþykktum lögum eiga rætur sínar að rekja til slíkra frumvarpa.Þá er skoðað hvernig bæta megi samspil Alþingis og ráðuneyta og hvort gæðastjórnunarfræðin geti nýst við þá vinnu. Helstu niðurstöður leiða í ljós að gott samræmi er á framsetningu lagagreina frumvarpa en þó mætti vanda betur til framsetningar almennra athugasemda. Tekin eru dæmi sem taka má til fyrirmyndar við umbætur á þeim atriðum. Nauðsynlegt er að öll gildandi lög og reglugerðir verði að finna á sama stað líkt og á Norðurlöndunum og gerðar eru tillögur að umbótum á því sviði. Fámenni innan ráðuneyta kallar á nauðsyn samstarfs við fagaðila sem taldir eru hæfir til að aðstoða við þá vinnu sem þar fer fram. Vandaður undirbúningur frumvarpa er bæði talinn stuðla að bættri meðferð frumvarpa á Alþingi og að því að minnka líkur á ágreiningi um gildi laga síðar meir. Vanda mætti enn betur framsetningu mála á þingmálaskrá og setja nákvæmari dagsetningar á þau mál sem vitað er hvenær tilbúin verða þegar hún er sett fram á haustin. Fram kemur að til viðbótar við það samráð sem þegar tíðkast væri æskilegt að samráð milli Alþings og ráðuneyta færi fram á undirbúningstíma frumvarpa, sérstaklega í mikilvægum málum. Tillaga er gerð að mælanlegum markmiðum í gæðamálum í lagasetningu á Íslandi svo hægt sé að fylgjast með þeim árangri sem náðst hefur í samræmingu vinnubragða og vinna að enn frekari umbótum. Tillögum að umbótum er komið á framfæri þegar við á og þær dregnar saman í niðurstöðum ásamt frekari hugmyndum. The subject is to find opportunities for regulatory reform in Iceland, with particular emphasis on the interaction between the parliament and government ministries. Quality control is analyzed, ...