Tóbaksvarnir í grunnskólum á Íslandi

Bakgrunnur: Erlendar rannsóknir sýna fram á mikilvægi tóbaksvarna í skólum til að fyrirbyggja að börn og ungmenni byrji tóbaksnotkun, en engin íslensk rannsókn hefur verið gerð til að kanna hvaða tóbaksvarnir eru í grunnskólum landsins. Tilgangur: Að kanna tóbaksvarnir í grunnskólum á Íslandi. Aðfer...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Sigríður Kristjánsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9361
Description
Summary:Bakgrunnur: Erlendar rannsóknir sýna fram á mikilvægi tóbaksvarna í skólum til að fyrirbyggja að börn og ungmenni byrji tóbaksnotkun, en engin íslensk rannsókn hefur verið gerð til að kanna hvaða tóbaksvarnir eru í grunnskólum landsins. Tilgangur: Að kanna tóbaksvarnir í grunnskólum á Íslandi. Aðferðafræði: Rannsóknin var framskyggn, lýsandi spurningakönnun. Þýðið spannaði alla skólastjóra og skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum landsins, samtals 314 manns. Svörun barst frá 73% grunnskólum landsins. Gagnasöfnun fór fram í marsmánuði 2010. Niðurstöður: Meginniðurstöður voru að tóbaksvörnum var sinnt að einhverju leyti í öllum skólum nema einum, óháð landshlutum. Tóbaksvörnum var mest sinnt í 7. og 8. bekk tengt verkefninu ,,Reyklaus bekkur“. Þriðjungur 10. bekkja í skólum þátttakenda fékk ekki tóbaksvarnir. Einungis fjórir skólar sinntu tóbaksvörnum í öllum bekkjum. Umsjónarkennari og/eða skólahjúkrunarfræðingur sinntu tóbaksvarnafræðslu í öllum skólum, í 39% tilvika með aðstoð annarra aðila. Jafningjafræðsla var einungis í 10% skólanna. Algengasta námsefnið í tóbaksvörnum var 6H heilsunnar, Vertu – frjáls reyklaus og tóbaksvarnafræðsla Lýðheilsustöðvar. Tóbaksvarnir fóru oftast fram í tímum umsjónarkennara og í tímum lífsleikni. Reglur um tóbaksnotkun voru í 88% skóla þátttakenda. Tóbaksvarnir voru í námskrám 65% skólanna, samkvæmt svörum skólastjóra, en skriflegar leiðbeiningar um hvernig taka ætti á tóbaksnotkun í um helmingi skóla þátttakenda. Einungis 45% hjúkrunarfræðinganna spurðu um tóbaksnotkun í heilsfarsskoðunum nemenda. Innan við helmingur þátttakenda hafði sótt námskeið eða fengið fræðslu um tóbaksvarnir í námi sínu. Ályktanir: Tóbaksvörnum er sinnt í skólum landsins, óháð landshlutum, en talsvert vantar upp á að þeim sé nægilega vel sinnt í 1. – 6. og 10. bekk. Umsjónarkennarar og skólahjúkrunarfræðingar bera hitann og þungann af tóbaksvörnum skólanna. Námsefni Lýðheilsustöðvar er vel nýtt í tóbaksvörnum skólanna. Reglur um tóbaksnotkun eru í flestum skólum en ákvæði um tóbaksvarnir vantar í námskrá ...