Þróun stefnumótunar Kynnisferða ehf. í Þórsmörk

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri frá og með 01.01.2010 Skipulag og stefnumótun eru nokkuð náin hugtök en þau eru nokkuð algeng í stjórnun fyrirtækja. Skipulag er ferli ákvarðana og athafnir byggðar á þeim en stefnumótun er síðan frekari útlistun á þessu ferli og snýst u...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Finnbogi Óskar Ómarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/934
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri frá og með 01.01.2010 Skipulag og stefnumótun eru nokkuð náin hugtök en þau eru nokkuð algeng í stjórnun fyrirtækja. Skipulag er ferli ákvarðana og athafnir byggðar á þeim en stefnumótun er síðan frekari útlistun á þessu ferli og snýst um að ná sem bestum árangri í rekstri fyrirtækja. Árangurinn grundvallast síðan á þeirri afstöðu fyrirtækisins, hvað það vill vera og hvað það vill verða í framtíðinni. Ferðaþjónusta er atvinnugrein sem hefur verið í örum vexti, bæði hérlendis og erlendis. Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur jafnvel verið meiri hér en annars staðar í Evrópu. Skipulag og stefnumótun eru einkum mikilvæg hugtök í ferðaþjónustu, m.a. vegna þess hversu þverfagleg og margþætt greinin er. Einnig er hún ung og enn í mótun en skipulag og stefnumótun geta verið leiðarljós í rétta átt. Þórsmörk er einn vinsælasti ferðamannastaður Suðurlands en fjölmargir ferðamenn sækja svæðið heim á hverju ári. Skýrsluhöfundur gerir grein fyrir ferðaþjónustu á svæðinu en skoðar sérstaklega Húsadal, sem Kynnisferðir ehf. eiga og reka. Í skýrslunni eru skoðaðar sérstaklega lögbundnar skipulagsáætlanir á svæðinu. Þá eru skoðaðar tvær aðferðir til stefnumótunar en tilgangur skýrslunnar er síðan að þróa mögulega stefnu Kynnisferða í Húsadal með annarri aðferðinni. Heitt vatn fannst nýlega í Húsadal sem kemur til með að gjörbylta öllu rekstrarumhverfi á svæði. Vetrarferðamennska og heilsuferðamennska eru meðal nýrra möguleika sem hægt væri að nýta. Lagt verður upp með þríþætta lykilhæfni sem felst í nýtingu á auðlindum svæðisins. Þessir lykilþættir eru náttúra, menning og fagmennska. Lykilorð: • Skipulag • Stefnumótun • Ferðaþjónusta • Ferðamannastaður • Þórsmörk