Skyndihjálparkunnátta : verðandi og starfandi grunnskólakennara

Í rannsókn okkar, sem byggðist á hálfopnum spurningalista ásamt verklegu/munnlegu prófi, voru 176 þátttakendur. Farið var í Kennaraháskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og í tíu grunnskóla í Reykjavík og var rannsóknin lögð fyrir verðandi og starfandi grunnskólakennara. Eitt af markmiðum rannsóknari...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elva Dögg Grímsdóttir, Hanna Sóley Helgadóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/912
Description
Summary:Í rannsókn okkar, sem byggðist á hálfopnum spurningalista ásamt verklegu/munnlegu prófi, voru 176 þátttakendur. Farið var í Kennaraháskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og í tíu grunnskóla í Reykjavík og var rannsóknin lögð fyrir verðandi og starfandi grunnskólakennara. Eitt af markmiðum rannsóknarinnar var að greina hver skyndihjálparkunnátta verðandi og starfandi grunnskólakennara væri. Þær niðurstöður liggja nú fyrir. Við teljum mikilvægt að Kennaraháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri ásamt Kennarasambandi Íslands taki í taumana miðað við þær niðurstöður sem komu út úr rannsókninni og væntum þess að skyndihjálp verði gerð að skylduáfanga í háskólunum ásamt reglubundinni endurmenntun. Það er margsannað að rétt viðbrögð á slysstað geta skipt sköpum í lífi þeirra sem slasast. Slys gera ekki boð á undan sér og því er nauðsynlegt að geta brugðist rétt við þegar skyndileg óhöpp eða slys verða.