Arðsemi hitaveitu í innanverðum Eyjafirði

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaverkefni þetta fjallar um þá hugmynd að bora eftir heitu vatni í landi Hólsgerðis í innanverðum Eyjafirði. Í dag er ekki hitaveita á þessu svæði. Húsin eru hituð upp með rafmagni, ýmist með rafmagnsofnum eða að hitadunkar eru notaðir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefán Sigurðsson 1982-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/908
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaverkefni þetta fjallar um þá hugmynd að bora eftir heitu vatni í landi Hólsgerðis í innanverðum Eyjafirði. Í dag er ekki hitaveita á þessu svæði. Húsin eru hituð upp með rafmagni, ýmist með rafmagnsofnum eða að hitadunkar eru notaðir til að hita vatn sem síðan fer á ofnana. Það er mat íbúanna á svæðinu og sérfræðinga sem hafa skoðað það að þar megi finna heitt vatn í nægilegu magni til að hita upp bæina í nágrenni Hólsgerðis. Í ritgerðinni er tilgreindur allur kostnaður sem fellur til við borun virkjunarholu, stofnæð og lagnir á bæina. Gerð er kostnaðargreining á framkvæmdinni og tvær næmnigreiningar. Skoðaðar eru ýmsar leiðir til fjármögnunar með styrkjum og niðurgreiðslum. Loks er fundin hagstæðasta leiðin til að fjármagna framkvæmdina með lánum og reiknuð út arðsemi hennar (IRR). Miðað við gefnar forsendur í þessu verkefni er arðvænt að bora eftir heitu vatni í Hólsgerðis. Einnig er fjallað um kosti þess að hafa hitaveitu með framtíðarhagsmuni sveitarinnar í huga, því að með tilkomu hitaveitu opnast möguleikar á rekstri sumarbústaðabyggðar og fleiri atvinnutækifærum. Lykilorð: - Hitaveita - Kostnaðargreing - Eyjafjarðarsveit - Lánamöguleikar - Arðsemi