Summary: | Verkir eru algengt hjúkrunarviðfangsefni á sjúkrastofnunum og rannsóknir hafa sýnt að verkjameðferðum er ábótavant. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi og eðli verkja og varpa ljósi á stöðu verkjameðferða á almennum lyflækningadeildum Landspítala, en sambærileg rannsókn hefur ekki verið gerð áður á Íslandi. Eftirfarandi rannsóknarspurningum var svarað: 1) Hversu algengir eru verkir á lyflækningadeildum Landspítala? 2) Hver er styrkleiki þeirra? 3) Hver eru áhrif verkja og verkjameðferða á líðan og daglegar athafnir? 4) Hversu ánægðir eru sjúklingarnir með þá verkjameðferð sem þeim er veitt? 5) Hversu mikla stjórn telja þeir sig hafa á verkjameðferð sinni? og 6) Hversu algeng er notkun viðbótarmeðferða við verkjum og hvaða meðferðir eru helst notaðar? Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn þar sem notast var við spurningalista við gagnaöflun. Í úrtakinu voru 170 sjúklingar á lyflækningadeildum Landspítala sem náð höfðu 18 ára aldri, skildu og töluðu íslensku, áttuðu sig á stað og stund og höfðu legið inni í a.m.k. sólarhring. Helstu niðurstöður voru þær að meirihluti þátttakenda var með verki en fæstir voru með mikla verki. Algengt var að verkir hefðu áhrif á daglegt líf. Flestir höfðu fengið verkjalyf síðastliðinn sólarhring en fáir notað aðrar aðferðir. Ánægja sjúklinga með verkjameðferðir var áberandi mikil. Lykilorð: Verkir, verkjameðferðir, áhrif verkja, lyflækningadeildir, sjúklingaánægja In hospitals nurses frequently care for patients suffering from pain, and research has shown pain treatments to be insufficient. The main purpose of this study was to assess both the frequency and the nature of pain, and examine the status of pain treatment on general medicine units at Landspítali – The National University Hospital of Iceland. A comparable research has not been conducted in Iceland before. The following research questions were answered: 1) What is the frequency of pain on general medicine units? 2) What is the severity of the pain? 3) How do pain and pain treatments affect patients’ ...
|