Umbun og teymi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Að vinna í teymi, að vera starfandi í teymisumhverfi, er eitthvað sem flestir kannast við og þekkja af eigin raun. Að fá hvatningu og umbun er einnig eitthvað sem flest okkar hafa notið einhvern tímann á lífsleiðinni og sum okkar hafa no...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörn Grétar Eggertsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/905
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Að vinna í teymi, að vera starfandi í teymisumhverfi, er eitthvað sem flestir kannast við og þekkja af eigin raun. Að fá hvatningu og umbun er einnig eitthvað sem flest okkar hafa notið einhvern tímann á lífsleiðinni og sum okkar hafa notið þess að þekkja hvoru tveggja. Í þessu verkefni er fjallað um báða þessa þætti og hvort að umbunarkerfi væru líkleg að auka árangur þeirra teyma sem vinna í slíku umhverfi. Í verkefninu var farið yfir þá þróun sem átt hefur sér stað varðandi teymi og teymisstjórnun og bornir saman kostir og gallar umbunarkerfa í slíku umhverfi. Skilgreining á teymi og stjórnun þeirra voru reifuð og sérstaklega var fjallað um árangursstjórnun. Nokkur umbunarkerfi voru kynnt og fjallað um mögulegan ávinning af slíkum kerfum. Leitast var við að svara þeirri rannsóknarspurningu hvort að umbun fyrir teymisvinnu væri líkleg til þess að skapa hagnað fyrir fyrirtæki. Niðurstaðan er sú að mörgu þarf að huga til að slíkt náist og í upphafi þarf að skilgreina vel hvert markmið fyrirtækisins er varðandi umbun til handa teymum. Rétt umbunarkerfi og teymi sem er vel stjórnað mun hafa þann ávinning í för með sér að eftir miklu er slægjast fyrir fyrirtæki og möguleikar til staðar að ná fram meiri hagnaði og framlegð.