Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf.

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Á tiltölulega stuttum tíma hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum breytingum. Frá því að vera tiltölulega einhæft bændasamfélag og fiskveiðiþjóð, yfir í nútímalegt samfélag. Þessar breytingar í gegnum árin hafa haft það í för með sér, að...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Magnúsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/897
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Á tiltölulega stuttum tíma hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum breytingum. Frá því að vera tiltölulega einhæft bændasamfélag og fiskveiðiþjóð, yfir í nútímalegt samfélag. Þessar breytingar í gegnum árin hafa haft það í för með sér, að atvinnutækifæri landsmanna hafa aukist og orðið fjölbreyttari. Í kjölfar þess að atvinnutækifærunum hefur fjölgað, hefur myndast meiri hreyfanleiki á starfsfólki, og þar með hefur starfsaldur fólks innan fyrirtækja lækkað. Þar sem fyrirtæki vilja hafa sem minnsta starfsmannaveltu, leita þau allra leiða til svo verði. Á góðum stað stendur “í upphafi skyldi endinn skoða”. Það er góð ábending þegar verið er að ráða nýtt starfsfólk. Nauðsynlegt er að taka vel á móti nýju starfsfólki, til að því finnist það, frá fyrsta degi, vera velkomið til fyrirtækisins. Einnig þarf nýliðaþjálfunin að vera sterk, þannig að hinn nýráðni starfsmaður fái sem fyrst innsýn í störf sín og hætta á mistökum verði minni en annars. Verkefni þetta sem unnið var í samvinnu við Þórsberg ehf. á Tálknafirði miðaði að því að athuga hvort erlendum starfsmönnum fyrirtækisins fyndist að vel hefði verið tekið á móti þeim, og hvernig nýliðaþjálfunin hefði tekist til. Að fyrirtækið geti þannig fundið út, hvort þessi tvö atriði væru að skila sér rétt til nýrra erlendra starfsmanna. Lykilorð: Starfsmannaráðningar – móttaka – þjálfun.