Dressmann : áhrif efnahagskreppunnar og atvinnuvegagreining.

Verkefnið er lokað Markmið þessa verkefnis er að kanna hvaða áhrif efnahagskreppan hefur haft á starfsemi og rekstur fataverslunarinnar Dressmann á Íslandi sem og á kauphegðun viðskiptavina. Einnig að kanna hvernig samkeppninni er háttað á herrafatamarkaðnum á Akureyri og greina hvort auðvelt sé fyr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnar Hólm Ragnarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8879
Description
Summary:Verkefnið er lokað Markmið þessa verkefnis er að kanna hvaða áhrif efnahagskreppan hefur haft á starfsemi og rekstur fataverslunarinnar Dressmann á Íslandi sem og á kauphegðun viðskiptavina. Einnig að kanna hvernig samkeppninni er háttað á herrafatamarkaðnum á Akureyri og greina hvort auðvelt sé fyrir ný fyrirtæki að koma inn á markaðinn. Í verkefninu var sagt frá upphafi og þróun efnahagskreppunnar og unnin var samkeppnis- og atvinnuvegagreining. Fengin voru rekstrargögn frá Dressmann til þess að kanna áhrifin sem efnahagskreppan hefur haft á rekstur fyrirtækisins hér á landi. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við þrjá verslunarrekendur á Akureyri og voru svör þeirra og viðhorf notuð til þess að vinna samkeppnis- og atvinnuvegagreiningu á herrafatamarkaðnum á Akureyri. Til þess að geta greint breytingar á kauphegðun viðskiptavina Dressmann var lögð spurningakönnun meðal viðskiptavina. Helstu niðurstöður samkeppnis- og atvinnuvegagreiningarinnar eru þær að samkeppnisbaráttan milli herrafataverslana á Akureyri er ekki mikil. Flestar verslanir eru meðvitaðar um herferðir samkeppnisaðilanna en bregðast ekki við þeim á neinn ákveðinn hátt. Eftirspurnin á markaðnum er mikil og fáar innkomuhindranir fyrir nýjar verslanir. Viðskiptavinir Dressmann leitast fyrst og fremst eftir ódýrum gæðavörum. Verð skiptir viðskiptavini Dressmann meira máli í dag en það gerði áður en efnahagskreppan skall á þrátt fyrir það þá hefur rúmlega helmingur viðskiptavina ekki dregið úr fatakaupum. Lykilorð: Efnahagskreppan, stefnumótun, Dressmann, fataverslanir og samkeppni