Faglegt markaðsstarf óhagnaðardrifinna skipulagsheilda : markaðsáætlun fyrir Háskólann á Akureyri

Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um þann mun sem er á hefðbundnum og óhagnaðardrifnum skiplagsheildum hvað markaðsstarf varðar og draga sérstaklega fram hvað er mikilvægt í markaðsstarfi háskóla. Niðurstöður benda til þess að margt sé hægt að gera til þess að ná auknum árangri í markaðsstarfi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórólfur Ómar Óskarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8862
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um þann mun sem er á hefðbundnum og óhagnaðardrifnum skiplagsheildum hvað markaðsstarf varðar og draga sérstaklega fram hvað er mikilvægt í markaðsstarfi háskóla. Niðurstöður benda til þess að margt sé hægt að gera til þess að ná auknum árangri í markaðsstarfi Háskólans á Akureyri. Höfundur leggur til að faglega verði staðið að markaðssetningu Háskólans á Akureyri og tillit sé tekið til þeirra þátta sem gera markaðssetningu háskóla frábrugðna hefðbundinni markaðssetningu. Með faglegu markaðsstarfi er átt við að unnið sé eftir markaðsáætlun ár hvert, að form miðaðrar markaðssetningar sé heimfært á háskólann og öllum þáttum markaðssetningar sé sinnt. Greining á núverandi stöðu leiddi í ljós misbrest á innri markaðssetningu og telur höfundur einnig að ytri markaðssetning sé sjálfhverf og ekki nægilega markhópsmiðuð. Niðurstöður SVÓT greiningar benda til þess að Háskólinn á Akureyri hafi alla burði til þess að dafna en þó þurfi að inna af hendi nokkra vinnu innanhúss. Einnig þarf að koma innri markaðssetningu í lag sé ætlunin að standast samkeppnina sem fer harðnandi með hverjum deginum. Tækifærin liggja í uppbyggingu orðspors með innra markaðsstarfi og notkun nokkurra mismunandi staðfærslustefna. Höfundur tekur ekki mark á því að markaðsrannsóknum sé lítið sinnt vegna fjársveltis og bendir á að Háskólinn á Akureyri geti lagt þetta verkefni fyrir nemendur og markaðs- og kynningarsviðið myndi hagnast mikið á nánu samstarfi við viðskiptadeild. Hvað markaðssetningu varðar telur höfundur að megi ná árangri með aukinni fjölmiðlaumfjöllun í kring um viðburði en margar hugmyndir eru lagðar til í markaðsáætlun. Huga þarf að almannatengslum, réttar upplýsingar til réttra aðila á réttum tíma geta komið í veg fyrir neikvæða umfjöllun og höfundur telur að huga þurfi að áfallastjórnun. Markmiðið um að nemendafjöldi verði yfir 2.000 í Háskólanum á Akureyri við innritun haustið 2016 mun nást ef háskólinn heldur sinni markaðshlutdeild og markaðurinn heldur áfram að stækka á sama hraða og hann ...