Hefur alþjóðavæðing fyrirtækis áhrif á mannauð þess?

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verkefni er fjallað um alþjóðlega mannauðsstjórnun, megin viðfangsefnið er að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á mannauð þegar fyrirtæki eru orðin alþjóðleg. Hefur alþjóðavæðing fyrirtækis áhrif á mannauð þess ? Unnin var fr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/886
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verkefni er fjallað um alþjóðlega mannauðsstjórnun, megin viðfangsefnið er að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á mannauð þegar fyrirtæki eru orðin alþjóðleg. Hefur alþjóðavæðing fyrirtækis áhrif á mannauð þess ? Unnin var fræðileg greining á þáttum alþjóðlegrar mannauðstjórnunnar, einkum á ráðningu, þjálfun og frammistöðumati. Lykilhugtök eru skilgreind til að brjóta niður tilgátuna og leggja grunn að markvissu mati og greiningu. Í þessari rannsókn var tekið viðtal við stjórnanda starfsmannasviðs hjá Actavis og mat og greining unnin út frá hans svörum. Viðtalið var tekið í mars 2006. Helsta niðurstaða er sú að Actavis er að fara í megindráttum eftir því sem fræðin segja til um hvað varðar ráðningarferlið. Hins vegar er ekki um markvissa þjálfun né markvisst frammistöðumat að ræða fyrir starfsmenn sem starfa erlendis á vegum fyrirtækisins. Á það skal hins vegar bent að erlendis starfa ekki nema sjö íslenskir starfsmenn hjá Actavis þegar verkefnið var unnið og af 10.000 starfsmönnum alls, eru ekki nema um það bil 20 sem starfa utan síns heimalands. Það gefur til kynna að alþjóðavæðing fyrirtækisins sé ekki að hafa bein áhrif á mannauð þess, þar sem fyrirtækið rekur starfsemi sína fyrst og fremst innan viðkomandi framleiðslulands (e.polycentric strategy). Í flestum tilfellum eru starfsmenn ekki sendir erlendis nema þeir óski þess sérstaklega. Lykilorð Alþjóðavæðing Mannauður Ráðning Þjálfun Frammistöðumat