Landsvirkjun : orkufyrirtæki á tímamótum

Verkefnið er lokað Markmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á ferli innleiðingar á breytingum hjá Landsvirkjun. Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu Íslensku þjóðarinnar og er fyrirtækið ábyrgt fyrir rekstri aflstöðva og nýtingu helstu virkjunarkosta á Íslandi. Stjórnendur Landsvirkjunar hafa skilg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Leonard Birgisson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8855
Description
Summary:Verkefnið er lokað Markmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á ferli innleiðingar á breytingum hjá Landsvirkjun. Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu Íslensku þjóðarinnar og er fyrirtækið ábyrgt fyrir rekstri aflstöðva og nýtingu helstu virkjunarkosta á Íslandi. Stjórnendur Landsvirkjunar hafa skilgreint hlutverk fyrirtækisins upp á nýtt. Tíminn frá stofnun Landsvirkjunar árið 1965 til ársins 2010 hefur verið skilgreindur sem tími framkvæmda en ný skilgreining fyrirtækisins leggur áherslu á markaðsstarf og rekstur. Rannsakandi beitti eigindlegri tilviksrannsókn og voru tekin viðtöl við tíu starfsmenn og stjórnendur hjá Landsvirkjun og einnig framkvæmdastjóra mannauðssviðs hjá N1. Miðað var við að fá fram sýn og viðhorf starfsmanna til breytinganna og framtíðar Landsvirkjunar. Einnig að greina hvaða hvatar og kraftar hafi áhrif á innleiðingu og með hvaða hætti þeir birtast. Niðurstöður sýna að innleiðing breytinga er skammt á veg komin en viðhorf starfsmanna er mjög jákvætt og áberandi er hve mikil bjartsýni ríkir meðal þeirra. Sterkir hvatar í ytra umhverfi Landsvirkjunar hafa mikil áhrif á framtíð fyrirtækisins og mikilvægt að fyrirtækið aðlagist til að vera vel í stakk búið til að starfa á samkeppnismarkaði þar sem arðsemi er höfð að leiðarljósi. Lykilhugtök: Breytingastjórnun Skipulagsheild Endurskipulagning Innleiðing Leiðtoginn The aim of the project is to shed light on the process of implementation of changes at Landsvirkjun. Landsvirkjun is an Icelandic publicly owned power company and is responsible for operating power generators as well as harnessing potential energy sources in Iceland. The management of Landsvirkjun has recently redefined the company’s role. The period from Landsvirkjun’s establishment, the years from 1965 to 2010 has been defined as the period of construction, while the new and current definition places emphasis on marketing and operation. The researcher used a qualitative research approach supported with ten interviews with employees and members of the management at Landsvirkjun ...