Fjölmenning, stjórnendur og erlent starfsfólk í fyrirtækjum í Ísafjarðarbæ

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðfangsefni þessa verkefnis eru fjölmenning, samskipti stjórnenda og erlends starfsfólks í Ísafjarðarbæ. Ákveðið var að notast við eigindlega rannsóknar-aðferð, það er að segja að nálgast verkefnið gegnum fyrirliggjandi gögn. Lesnar ský...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Alberta Ásgeirsdóttir, Þórlaug Ásgeirsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/883
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðfangsefni þessa verkefnis eru fjölmenning, samskipti stjórnenda og erlends starfsfólks í Ísafjarðarbæ. Ákveðið var að notast við eigindlega rannsóknar-aðferð, það er að segja að nálgast verkefnið gegnum fyrirliggjandi gögn. Lesnar skýrslur og greinar sem gefnar hafa verið út varðandi þetta efni. Lagarammar er varða dvalar- og atvinnuleyfi útlendinga skoðaðir. Gerð var könnun meðal stjórnenda varðandi erlenda starfsmenn og eru niðurstöður hennar kynntar. Helstu niðurstöður eru að það vantar samræmda stefnu í málefnum innflytjenda. Skyldur eru lagðar á herðar innflytjendum um íslenskunám, sækist þeir eftir búsetuleyfi, sem þeir eiga erfitt með að uppfylla vegna þess að námskeiðin eru hreinlega ekki í boði. Hefðbundin starfsþjálfun er notuð í nýliðaþjálfun erlendu starfsmannanna en helsti flöskuhálsinn er tungumálakunnáttan. Lykilorð: Fjölmenning - multi culture Samskipti - communication Erlent vinnuafl – multi cultural workforce Dvalar- og atvinnuleyfi residence and work permit ES/EES