Fólasínnotkun barnshafandi kvenna fyrir þungun og á meðgöngu

Verkefnið er lokað Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna þekkingu og inntöku fólasíns meðal kvenna fyrir þungun og á meðgöngu. Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar í tengslum við inntöku fólasíns og áhrif þess á þroska fósturs. Við gerð þessarar rannsóknar var notuð megindleg aðferðafræði. Upplýs...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Aðalbjörg Rósa Sigurðardóttir, Berglind Ósk Sigurðardóttir, Íris Ósk Guðmundsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8819
Description
Summary:Verkefnið er lokað Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna þekkingu og inntöku fólasíns meðal kvenna fyrir þungun og á meðgöngu. Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar í tengslum við inntöku fólasíns og áhrif þess á þroska fósturs. Við gerð þessarar rannsóknar var notuð megindleg aðferðafræði. Upplýsingum var safnað á kerfisbundinn hátt með spurningalista og var hann lagður fyrir konur sem komu í mæðravernd á Heilsugæslustöðina á Akureyri. Spurningalistinn innihélt 13 spurningar. Alls svöruðu 61 kona spurningalistanum. Spurningalistinn var hannaður og fyrst notaður á Akureyri árið 2000. Við úrvinnslu gagna voru reiknaðar út prósentutölur og hlutföll. Niðurstöður voru svo sýndar í súluritum. Rannsakendur settu fram þær tilgátur að minnihluti kvenna taki fólasín fyrir þungun, að meirihluti kvenna taki fólasín á meðgöngu og að þekkingu kvenna á barneignaraldri á forvarnargildi fólasíns sé ábótavant. Rannsóknarspurningar rannsakenda voru eftirtaldar: Hversu hátt hlutfall barnshafandi kvenna á Akureyri tók fólasín fyrir þungun og á meðgöngu? Hversu hátt hlutfall barnshafandi kvenna á Akureyri hefur þekkingu á forvarnargildi fólasíns? Hvaða munur er á þekkingu og inntöku fólasíns eftir þjóðfélagsstöðu? Rannsóknarniðurstöður leiddu í ljós að konur sem tóku fólasín inn a.m.k. fjórum vikum fyrir þungun voru í minnihluta eða 26,2% þrátt fyrir að 72,1% þátttakenda höfðu fyrirfram ráðgert þessa þungun. Hins vegar fór dagleg inntaka fólasíns eftir þungun upp í 60,7%. Þetta sýnir að mati rannsakenda greinilega þörf fyrir fræðslu um mikilvægi þess að konur hefji inntöku fólasíns daglega í ráðlagðri skammtastærð a.m.k. fjórum vikum áður en þungun á sér stað og fyrstu 12 vikur meðgöngunnar. Lykilhugtök: Fólasíninntaka, forvarnargildi, meðganga, miðtaugakerfisgallar (MTG).