Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar Eating Disorder Evaluation-Questionnaire (EDE-Q) og Clinical Impairment Assessment (CIA)

Markmið rannsóknarinnar var að skoða próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu sjálfsmatslistanna Eating Disorder Evaluation-Questionnaire (EDE-Q) sem metur einkenni átraskana og Clinical Impairment Assessment (CIA) sem metur sálræna og félagslega skerðingu vegna einkenna átraskana. Tilgangur ranns...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sólveig María Ólafsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8799
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að skoða próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu sjálfsmatslistanna Eating Disorder Evaluation-Questionnaire (EDE-Q) sem metur einkenni átraskana og Clinical Impairment Assessment (CIA) sem metur sálræna og félagslega skerðingu vegna einkenna átraskana. Tilgangur rannsóknarinnar var að bæta stöðu mælitækja á sviði átröskunar og bæta þannig gæði þeirrar þjónustu sem hægt er að veita átröskunarsjúklingum. Tengsl listanna við aðra lista sem eiga að meta svipaðar hugsmíðar voru skoðuð. Þetta voru listarnir Eating Attitudes Test (EAT-26) sem einnig metur einkenni átraskana og Despression Anxiety Stress Scale (DASS-42) sem metur einkenni þunglyndis, kvíða og streitu. Þátttakendur svöruðu spurningalistum og skiptust í tvo hópa. Í samanburðarhóp voru 173 konur úr Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Í átröskunarhóp voru 14 konur sem voru í eftirliti eða meðferð vegna átröskunar hjá meðferðaraðila átröskunarteymis Landspítala Háskólasjúkrahúss. Niðurstöður sýndu að EDE-Q og CIA hafa gott samleitni og aðgreiniréttmæti, góðan innri áreiðanleika og niðurstöður þáttagreiningar voru í samræmi við þáttagreiningar listanna í erlendum rannsóknum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru vísbending um að próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu EDE-Q og CIA séu góðir og mælitækin geti aukið skilvirkni og gæði greininga og meðferðar átraskana á Íslandi.