Hauggasrannsóknir á urðunarstöðum á Íslandi

Með gildistöku reglugerða nr. 737/2003 begin_of_the_skype_highlighting 737/2003 end_of_the_skype_highlighting um urðun úrgangs var urðunarstöðum á Íslandi sem taka á móti lífrænum úrgangi skylt að safna hauggasi frá þeim úrgangi sem urðaður er eftir 16.júlí 2009. Hauggas samanstendur að stærstum hlu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Atli Júlíusson 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Gas
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8765
Description
Summary:Með gildistöku reglugerða nr. 737/2003 begin_of_the_skype_highlighting 737/2003 end_of_the_skype_highlighting um urðun úrgangs var urðunarstöðum á Íslandi sem taka á móti lífrænum úrgangi skylt að safna hauggasi frá þeim úrgangi sem urðaður er eftir 16.júlí 2009. Hauggas samanstendur að stærstum hluta af gróðurhúsalofttegundunum koldíoxíð og metan en metan er um 21 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koldíoxíð.Losun gróðurhúsalofttegunda frá sex helstu uppsprettum á Íslandi árið 2007 var um 4.480.000 tonn CO2-ígildi af því losnar um 4,8 % vegna urðunar úrgangs. Um það bil tveir þriðju af hauggasmyndun er nú þegar meðhöndluð og nýtt sem eldsneyti á bifreiða á Íslandi. Í lok árs 2011 er áætlað að um þúsund ökutæki nýti metan sem eldsneyti. Hauggasmælingar voru framkvæmdar á 10 urðunarstöðum á Íslandi árið 2010 sem taka við úrgangi frá 500 til 20.000 íbúum. Niðurstöður áætlunar um metanmyndun í urðunarstöðum sýnir að í urðunarstöðum sem þjónusta frá 1.500 til 20.000 íbúa mynda um 0,0032 m3/klst. á íbúa á ári en minni urðunarstaðir einungis um 1/5 af því gildi. Samsetning hauggassins í 7 urðunarstöðum af 10 er þannig að tæknilega mögulegt er að safna hauggasinu sem myndast. Þá dregur hauggassöfnun tveggja stærstu urðunarstaða landsins úr heildarlosun gróðurhúsalofttegunda vegna urðaðs úrgangs um 30%. Valkostagreining er gerð á urðunarstöðum rannsóknarinnar hvað varðar umhverfislega- og fjárhagslega hagkvæmni. With adoption of the regulation nr.737/2003 regarding landfilling of waste in Iceland, collection of landfill gas is mandatory for landfilling organic waste. Landfill gas is composed mostly of the greenhouse gases carbon dioxide and methane. Methane is 21 times more effective as a greenhouse gas then carbon dioxide. The 6 main sources of greenhouse gasses in Iceland produced 4.480.000 tons of C02 in 2007, where 4,8 % comes from solid waste landfills. About two thirds of the landfill gas production is already being harnessed and used for methane fuel production that today serves the equivalent about 1000 ...