Nýting þekkingarstjórnunar og sprungulíkans þjónustu til hagsbóta fyrir Vegagerðina

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Innleiðing þekkingarstjórnunar hefur farið hratt vaxandi undanfarin ár og áratugi, sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að gera sér ljóst hveru mikill auður býr í þekkingu starfsmanna, þennan þekkingarauð er hægt að nýta til að ná samkeppn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólafur Kristinn Kristjánsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/872
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Innleiðing þekkingarstjórnunar hefur farið hratt vaxandi undanfarin ár og áratugi, sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að gera sér ljóst hveru mikill auður býr í þekkingu starfsmanna, þennan þekkingarauð er hægt að nýta til að ná samkeppnisforskoti á markaði en einnig til að auka þjónustugæði fyrirtækja. Þekking er öllum fyrirtækjum mikilvæg, hún getur verið mikilvægt vopn í harðri samkeppni og styrkt stöðu á markaði. Markviss miðlun þekkingar innan fyrirtækja stuðlar að betri starfsanda og betri þjónustu við viðskiptavini. Þjónustufyrirtækjum er mikilvægt að gera sér nákvæma grein fyrir hverjar væntingar viðskiptavina eru til þjónustunnar, sprungulíkan þjónustu getur hjálpað til við að átta sig á hvar þjónustan uppfyllir ekki væntingar. Gerð var könnun til að skoða innleiðingu þekkingarstjórnunar hjá Vegagerðinni á Vesturlandi, hvort að markvisst væri staðið að innleiðingu hennar. Einnig var gerð könnun til að átta sig á hvort að framsetning vetrarþjónustu uppfyllti kröfur vegfarenda. Niðurstöður skoðaðar í fræðilegu samhengi. Þekkingarstjórnun er notuð að talsverðu leiti innan Vegagerðarinnar þrátt fyrir að hafa ekki verið innleidd á markvissan hátt. Einnig komu fram vísbendingar um að sprungulíkan þjónustu væri gagnlegt fyrir Vegagerðina til að endurmeta hönnun og framsetningu þjónustu. Niðurstöður benda til að Vegagerðin hafi ákveðin tækifæri til að nýta þekkingu starfsmanna enn betur, og einnig þarf að endurskoða framsetningu þjónustu. Lykilorð: Þekkingarstjórnun, Sprungulíkan, Vegagerðin, Vesturland, Þjónusta.