„Þú veist þetta er náttúrulega bara alið upp í manni.“ Form og tilgangur sjómannadagsins í Vestmannaeyjum fyrr og nú

Í þessari ritgerð er form og tilgangur sjómannadagsins í Vestmannaeyjum skoðaður útfrá kenningum um sviðslist. Ritgerðinni er skipt í fimm hluta en í byrjun verður fjallað um hátíðir og nýjustu rannsóknir á þeim hér á landi. Í öðrum hluta er tekin fyrir sviðslistafræði og þær kenningar sem stuðst er...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrefna Valdís Guðmundsdóttir 1968-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8690
Description
Summary:Í þessari ritgerð er form og tilgangur sjómannadagsins í Vestmannaeyjum skoðaður útfrá kenningum um sviðslist. Ritgerðinni er skipt í fimm hluta en í byrjun verður fjallað um hátíðir og nýjustu rannsóknir á þeim hér á landi. Í öðrum hluta er tekin fyrir sviðslistafræði og þær kenningar sem stuðst er við þegar fjallað verður um sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Þriðji kafli er um uppruna dagsins allt frá fyrstu hugmyndum, þangað til dagurinn varð að veruleika í Reykjavík 1938. Þá er farið í uppruna dagsins í Vestmannaeyjum en einnig sagt frá þeim hátíðum er voru fyrir meðal sjómanna þar. Í fjórða kafla er svo sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum skoðaður út frá kenningum um sviðslist, en þar mun ég styðjast við viðtöl er ég tók við sex einstaklinga um upplifun þeirra á deginum, ásamt heimildum úr fundargerðarbókum sjómannadagsráðs og Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja. Að lokum er fjallað um tilgang sjómannadagsins frá sjónarhóli þeirra er ég tók viðtal við.