Stjórnun í fjölmenningarlegu umhverfi : hvernig nær stjórnandi að halda utanum ólíka þætti þar sem mismunandi menningarsjónarmið koma fram

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um erlent vinnuafl í þjónustufyrirtæki og skoðað hvernig samskiptum milli stjórnenda og íslenskra starfsmanna annarsvegar, og stjórnenda og erlendra starfsmanna hinsvegar er háttað út frá ólíkri menningu og s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Linda Björk Holm
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/868
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um erlent vinnuafl í þjónustufyrirtæki og skoðað hvernig samskiptum milli stjórnenda og íslenskra starfsmanna annarsvegar, og stjórnenda og erlendra starfsmanna hinsvegar er háttað út frá ólíkri menningu og sérstaklega tungumálum. Lykilorðin sem notast var við voru mannauðsstjórnun, menning og fjölmenningarlegur vinnustaður. Til samstarfs fékk ég Svæðisskrifstofu Málefna Fatlaðra á Reykjanesi og frá þeim voru nokkrar starfsstöðvar skoðaðar. Tekin voru nokkur viðtöl við bæði íslenska starfsmenn, erlenda starfsmenn og stjórnendur þeirra. Í þessari ritgerð verður farið yfir menningarlegan fjölbreytileika fólks og þá sérstaklega í hverju sá fjölbreytileiki felst með því að skoða hvernig starfsánægja og hvatning birtist á fjölmenningarlegum vinnustöðum. Samskiptavandamál eru helstu vandamálin sem koma upp vegna mismunandi menningarbakgrunns. Ef fólk fær ekki kennslu í að reyna að skilja hvert annað er hætta á að það gefist upp og ákveði að hlutirnir séu ómögulegir. Því ætti íslenskukennsla að vera partur af stefnumótun hvers fyrirtækis til þess einfaldlega að fyrirbyggja þetta vandamál.