Ríki Vatnajökuls. Fortíð, nútíð, framtíð

Viðfangsefni þessa rannsóknarverkefnis var að athuga klasasamstarf í Austur-Skaftafellssýslu og hlutverk þess í markaðssetningu undir vörumerkjunum WOW! og Ríki Vatnajökuls. Klasinn hefur það að markmiði að gera svæðið meðal þekktustu ferðamannasvæða á Íslandi. Unnið er að málefnum tengdum ferðaþjón...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðný Gígja Benediktsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8671
Description
Summary:Viðfangsefni þessa rannsóknarverkefnis var að athuga klasasamstarf í Austur-Skaftafellssýslu og hlutverk þess í markaðssetningu undir vörumerkjunum WOW! og Ríki Vatnajökuls. Klasinn hefur það að markmiði að gera svæðið meðal þekktustu ferðamannasvæða á Íslandi. Unnið er að málefnum tengdum ferðaþjónustu, matvinnslu og menningu ásamt því að auka samvirkni milli fyrirtækja og stofnana til þess að efla atvinnu-, arðbærni og mannlíf í sveitarfélaginu. Lagt var af stað í þessa rannsókn með það að leiðarljósi að kynna sér starfsemi þessa klasasamstarfs, bæði í fortíð og nútíð ásamt mögulegum framtíðaráformum. Nýttar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi staðlaðra viðtala þar sem sóst var eftir að svara eftirfarandi spurningum: Hvaða hlutverki gegna ímyndir í markaðssetningu á Ríki Vatnajökuls? Hverjar voru helstu hugmyndirnar á bakvið klasasamstarfið? Hver er staðan á klasasanum í dag? Stenst klasasamstarfið væntingar hluthafa? Hver er stefna klasasamstarfsin og hvernig er hægt að stuðla að markvissri uppbyggingu þess? Niðurstöður gefa til kynna að ímynd svæða gegni veigamiklu hlutverki í markaðssetningu sveitarfélaga og að lykillinn að því að efla samkeppnisforskot þeirra liggi í svokölluðu klasasamstarfi. Klasar efla ekki einungis gæði og framboð á vöru og þjónustu heldur séu einnig þekktir fyrir að stuðla að aukinni arðsemi fyrirtækja. Klasasamstarf Ríki Vatnajökuls virðist hafa gengið vel og stenst að stærstum hluta væntingar hluthafa þess. Þrátt fyrir það er klasasamstarfið langt frá því að vera fullkomið og kominn tími á endurskoðun. Abstract The following research project discusses a cluster in Austur-Skaftafellssýsla and its role in marketing under the brands WOW! The clusters main purpose is to make the region one of the best known tourism sites in Iceland. The cluster works on issues related to tourism, local food products and culture, as well as increasing interoperability between the companies to promote employment, profitability and culture in the area. The main purpose of the research was to ...