Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Miklar breytingar hafa orðið í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár með tilkomu samruna fyrirtækja. Samruni getur viðskiptalega séð verið ábatasamur, en það er alltaf að koma betur í ljós að hann skapar mikla streitu hjá starfsfólkinu sem gengur í gegnum hann. Fræðimenn hafa sýnt fram á að samruni getur skapað kvíða og mikla streitu á meðan á samrunanum stendur. Einnig hefur verið bent á að samruni nái ekki fjárhagslegum markmiðum sínum, en það má rekja beint til þess að ekki hefur verið hugað nægilega vel að starfsfólkinu við framkvæmd samrunans. Í ritgerðinni er fjallað almennt um stjórnun og mannauðsstjórnun, breytingastjórnun og menningu. Áhersla er lögð á þætti eins og starfsánægju starfsmanna, menningu fyrirtækja, samruna fyrirtækja og breytingar í kjölfar samruna. Íslandssími, Tal og OgVodafone sameinuðust í apríl 2003. Í ritgerðinni eru skoðuð þau áhrif sem samruni fyrirtækjanna hafði á starfsánægju og líðan starfsfólksins. Könnunin var lögð fyrir starfsmenn Vodafone sem störfuðu hjá Íslandssíma og Tali fyrir samrunann og byggir á megindlegri aðferðarfræði.
|