Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta snýr að því að athuga hvort að hugmyndafræði klasa henti til eflingar atvinnulífs í Stykkishólmi. Notast var við kenningar Michaels E. Porter um samkeppnishæfni og klasasamstarf þar sem skoðað var hvað þarf að vera til staðar til að klasaverkefni nái framgangi. Við greiningarvinnuna var horft til fyrirliggjandi gagna sem snerta grunngerð samfélagsins. Þá voru tvær spurningakannanir framkvæmdar. Annars vegar fyrir fyrirtæki í bænum til að afla upplýsinga um grunngerð þeirra og vilja til samstarfs. Hins vegar fyrir íbúa bæjarins 18 ára og eldri í þeim tilgangi að kanna skiptingu í atvinnugreinar, menntunarstig og íbúaþróun. Að lokum var framkvæmd SVÓT greining til að greina styrkleika, veikeika, ógnanir og tækifæri í sveitarfélaginu. Helstu niðurstöður gefa að mati höfunda til kynna að hugmyndafræði klasa sé nálgun sem geti hentað við eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi. Lykilorð: Atvinnulíf, demantskenning, klasaverkefni, samstarf, sveitarfélag.
|