Leikþáttur í borgarumhverfi : skynjun og félagslegar athafnir á ferðalögum um borgina

Leikrit borgarinnar fjallar um margvíslegar athafnir þar sem fólk kemur saman; í stuttu máli sagt fjallar það um borgarlíf. Borg er kerfi sem þarf að vera sveigjanlegt að þörfum fólksins sem byggir borgina, býr þar og á samskipti. Ferðalög á milli staða í borginni eru grundvöllur fyrir því að borgar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Auður Hreiðarsdóttir 1988-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8572
Description
Summary:Leikrit borgarinnar fjallar um margvíslegar athafnir þar sem fólk kemur saman; í stuttu máli sagt fjallar það um borgarlíf. Borg er kerfi sem þarf að vera sveigjanlegt að þörfum fólksins sem byggir borgina, býr þar og á samskipti. Ferðalög á milli staða í borginni eru grundvöllur fyrir því að borgarlíf myndist. Ferðalögin eru farin í margvíslegum tilgangi og eru ýmsar tegundir ferðamáta notaðar til þess að komast á milli staða. Samband ferðalangs og borgarumhverfisins sem og samskipti við aðra ferðalanga eru til umfjöllunar í ritgerðinni. Skipulag borgarinnar hefur áhrif á ferðalagið; fjölbreytt upplifun og félagsleg samskipti endurspegla gott og breytilegt kerfi. Ferðamáti er mikilvægur þáttur í umfjölluninni en skynjun vegfaranda á umhverfinu er breytileg eftir því hvaða ferðamáti er notaður. Reykjavík er ung borg og skipulagið er enn að reyna að finna þann farveg sem þjónar borgarbúum best. Kerfi borgarinnar er í dálítilli óreiðu og ekki er jafnvægi á milli allra þátta þess. Fjallað er um valda þætti í sögu skipulagsins og viðhorf til reykvísks borgarsamfélags. Að koma reiðu á óreiðuna er verðugt markmið og bent verður á aðgerðir sem gripið hefur verið til erlendis til þess að koma kerfinu í jafnvægi, dýpka upplifunina með áhugaverðu borgarumhverfi og styrkja innviði borgarsamfélagsins með virku borgarlífi.