Möguleikar á lengingu ferðamannatímabilsins með menningarviðburðum

Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu er þekkt fyrirbæri í heiminum og þá sérstaklega á norðurhveli jarðar. Ísland er engin undantekning hvað það varðar en samkvæmt könnunum Ferðamálastofu koma flestir ferðamenn til Íslands yfir sumartímann. Náttúra Íslands hefur verið aðalaðdráttarafl erlendra ferðamanna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Dögg Guðmundsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8535
Description
Summary:Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu er þekkt fyrirbæri í heiminum og þá sérstaklega á norðurhveli jarðar. Ísland er engin undantekning hvað það varðar en samkvæmt könnunum Ferðamálastofu koma flestir ferðamenn til Íslands yfir sumartímann. Náttúra Íslands hefur verið aðalaðdráttarafl erlendra ferðamanna sem heimsækja landið en lítill hluti ferðast vegna menningar og sögu landsins. Markmið með rannsókn þessari er að kanna hvort möguleiki sé að dreifa árstíðabundinni eftirspurn ferðaþjónustunnar með menningarviðburðum í Reykjavík. Markmið er einnig að skoða hversu mikil áhersla er lögð á markaðssetningu menningarviðburða erlendis og hvort að grundvöllur sé fyrir því að auka menningarviðburði á veturna. Niðurstöðurnar byggjast á viðtölum við sjö aðila sem koma með einum eða öðrum hætti að menningu, menningarviðburðum eða ferðaþjónustu. Helstu niðurstöður sýna að almennt er framboð menningarviðburða gott í Reykjavík. Þó eru flestir menningarviðburðir á háanna- og jaðartímanum og því grundvöllur að efla framboð yfir vetrartímann. Markaðssetningu menningarviðburða er markvisst komið til skila erlendis en áhersla hefur verið að kynna þá fyrst og fremst fyrir heimamönnum. Það hefur sýnt sig að þátttaka heimamanna sé lykillinn að velgengni menningarviðburða og því ekki raunhæft að fara af stað með menningarviðburði einungis með því markmiði að laða að ferðamenn. Það gæti hinsvegar haft áhrif á komur ferðamanna og að þeir velji ferðalagið á öðrum tíma ef eitthvað er um að vera. Það er því möguleiki að fara þessa leið til að lengja ferðamannatímabilið en það þarf að vera í góðri samvinnu við aðila innan menningar, og ferðaþjónustu og lykilaðila í markaðssetningu. Seasonal demand in the tourism industry is a well-known phenomenon in the world, especially in the peripheral areas. Iceland is no exception for that matter but according to the Icelandic Tourism Board most visitors travel to Iceland during the summertime. Icelandic nature has been the main tourism attraction for foreign tourists but a small amount of visitors ...