Ímynd Súðavíkurhrepps

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Sú ritgerð sem hér fer á eftir fjallar um rannsókn á viðhorfi og ímynd fólks til Súðavíkurhrepps. Markmið rannsóknarinnar er að gefa hugmynd um árangur þess ímyndarstarfs sem unnið hefur verið eftir mikla uppbyggingu við erfiðar ytri aðs...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Þorgeirsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/851
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Sú ritgerð sem hér fer á eftir fjallar um rannsókn á viðhorfi og ímynd fólks til Súðavíkurhrepps. Markmið rannsóknarinnar er að gefa hugmynd um árangur þess ímyndarstarfs sem unnið hefur verið eftir mikla uppbyggingu við erfiðar ytri aðstæður. Notuð var rannsókn í formi rýnihópa. Þrír sex manna hópar voru fengnir til að tjá sig um efnið og voru flestir búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Ef marka má skoðanir rýnihópanna þriggja voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar þær að þátttakendur höfðu ekki tekið sérstaklega eftir uppbyggingarstarfi Súðavíkurhrepps. Þó var munur á hversu mikið jákvæðari og meðvitaðri þeir þátttakendur sem heimsótt höfðu Súðavík voru, varðandi það hvað sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Áberandi var hve mjög þátttakendur voru uppteknir af þeirri hættu sem þeir telja steðja að íbúum Vestfjarða og þá ekki síst Súðavíkur hvað varðar snjóflóð. Bersýnilegt var að fréttaumfjallanir um snjóflóðahættu sitja eftir í hugum fólks og svo virtist sem skynjun sumra væri sú að þessi ógn stafaði stöðugt að íbúum Vestfjarða. Lykilorð: Sveitarfélag Markaðshlutun Staðfærsla Ímynd Rýnihóparannsókn