Meðferðir sjúkraþjálfara við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu

Þessi ritgerð fjallar um mismunandi meðferðir sjúkraþjálfara við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, en um 20% ófrískra kvenna glíma við þetta vandamál. Tilgangur ritgerðarinnar var tvíþættur; annars vegar að kynna sér heimildir um mismunandi meðferðir við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, hins vegar að...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þórunn Kristín Kjærbo 1987-, Steinunn Ylfa Harðardóttir 1987-, Þorgerður Jóhannsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8492
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um mismunandi meðferðir sjúkraþjálfara við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, en um 20% ófrískra kvenna glíma við þetta vandamál. Tilgangur ritgerðarinnar var tvíþættur; annars vegar að kynna sér heimildir um mismunandi meðferðir við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, hins vegar að kanna algengi hverrar meðferðar hjá sjúkraþjálfurum í Félagi íslenskra sjúkraþjálfara og rök þeirra fyrir vali sínu á meðferðum. Þetta var kannað með spurningalista. Margar meðferðir eru í boði fyrir konur með mjaðmagrindarverki á meðgöngu. Gerð verður grein fyrir hverri meðferð, rannsóknum sem liggja að baki henni, auk kostum og göllum hverrar meðferðar. Einnig verður fjallað um í hvaða tilfellum hver meðferð á rétt á sér. Niðurstöður úr könnuninni voru að fræðsla, mjúkvefjameðferð, æfingar og útvegun hjálpartækja voru algengustu form meðferða við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu meðal sjúkraþjálfara á Íslandi. Yfir helmingur sjúkraþjálfara notuðu einnig teygjur, liðlosun og hitameðferð við þessu vandamáli. Minna en helmingur notuðu laser, kinesio teip, kuldameðferð, TENS, nálastungur og hljóðbylgjur í meðferð sinni. Almennt voru ekki nægar heimildir til varðandi árangur meðferða við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu. Þörf er á að rannsaka þetta betur. This thesis is about the different therapies physiotherapists use when treating pelvic girdle pain during pregnancy, which is a fairly common problem among pregnant women, as approximately 20% suffer from this problem. The purpose of this thesis was twofold, on the one hand to study the documentation on different therapies, and on the other hand to find out what type of therapy is preferred by physiotherapists in Iceland and the reason behind their treatment choices. This was done by using a questionnaire. Many therapies are available for women with pregnancy related pelvic girdle pain. Each of these therapies was assessed individually, according to available research, and their pros and cons were evaluated as well as recommended application. The results of the ...