Kostnaðargreining heimaþjónustu Fjarðabyggðar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Félagsleg heimaþjónusta er hluti af þeirri þjónustu sem sveitafélögum á Íslandi ber skylda til að bjóða íbúum sínum upp á. Er þessi þjónusta studd með lögum um félagsþjónustu sveitafélaga og lögum um málefni aldraðra. Munur getur verið á...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Guðfinnsdóttir, Helga Katrín Leifsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/836
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Félagsleg heimaþjónusta er hluti af þeirri þjónustu sem sveitafélögum á Íslandi ber skylda til að bjóða íbúum sínum upp á. Er þessi þjónusta studd með lögum um félagsþjónustu sveitafélaga og lögum um málefni aldraðra. Munur getur verið á þjónustunni milli sveitarfélaga en það fer eftir samsetningu þjónustuþega hvernig þjónustan er veitt. Í Fjarðabyggð eru sex byggðarkjarnar, það eru Mjóifjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður. Er regluleg heimaþjónusta veitt í fimm byggðarkjörnum en það er aðeins i Mjóafirði sem er ekki regluleg félagsleg heimaþjónusta. Höfundar ákváðu að kostnaðargreina félagslega heimaþjónustu hjá sveitafélaginu Fjarðabyggð á bókhaldsárinu 2006 en sá kostnaður var um það bil fjórðungur af heildargjöldum félagsþjónustusviðsins. Þegar byggðarkjarnarnir fimm voru bornir saman þá kom í ljós að heildartekjur, heildargjöld, heildarþjónustutímar og gjöld umfram tekjur eru í svipuðu hlutfalli miðað við stærð hvers kjarna. Þegar Fjarðabyggð var síðan borin saman við tvö önnur sveitarfélög, Seltjarnarnes og Skagafjörð, má sjá að tekjur Fjarðabyggðar sem hlutfall af heildarkostnaði voru minni en hjá samanburðarsveitafélögunum. Kostnaður á hvert heimili var hæstur hjá Fjarðabyggð. Í þessum samanburði var heimaþjónustan í flestum tilfellum dýrust í Fjarðabyggð vegna þess að meðal þjónustustundir eru fleiri á heimili í Fjarðabyggð en á hinum stöðunum tveimur. Það gæti skýrst af því hve meðalaldur þjónustuþega í Fjarðabyggð er hár og skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum. Félagsleg heimaþjónusta Þjónusta (Service) Kostnaðargreining (Cost analysis) Kostnaður (Costing) Þjónustustundir (Service hour)