Inspired by Iceland. Viðhorf til markaðsátaksins

Við eldgosið í Eyjafjallajökli leit út fyrir að ferðaþjónustan í landinu yrði fyrir miklum skaða. Því var ákveðið að fara í markaðsátak til að reyna að bjarga ferðamannasumrinu 2010. Átakið, Inspired by Iceland, var samstarfsverkefni íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland Express,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Finnur Ingi Stefánsson 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8300
Description
Summary:Við eldgosið í Eyjafjallajökli leit út fyrir að ferðaþjónustan í landinu yrði fyrir miklum skaða. Því var ákveðið að fara í markaðsátak til að reyna að bjarga ferðamannasumrinu 2010. Átakið, Inspired by Iceland, var samstarfsverkefni íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland Express, Íslandsstofu, markaðsstofa landshlutanna og aðila í Samtökum ferðaþjónustunnar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf þeirra sem starfa við markaðssetningu í ferðaþjónustu til Inspired by Iceland markaðsátaksins og hvort áhrif átaksins hafi verið svipuð um allt landið eða hvort einhverjir hlutar þess hafi komið betur út en aðrir. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru sex opin viðtöl og í þremur tilfellum var viðtalsrammanum svarað í gegnum tölvupóst. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru almennt ánægðir með að farið var í þetta átak. Sérstaklega var fólk ánægt með þá samvinnu sem átakið leiddi til meðal ferðaþjónustuaðila í landinu. Þó eru nokkrir vankantar sem fólk benti á. Þar ber helst að nefna val á markhópum og dreifing áhrifa átaksins um landsbyggðina. Fólk talar um að það myndi ráðast í annað sambærilegt átak í framtíðiðinni, sérstaklega ef reynt yrði að bæta það sem ekki fór nógu vel í þessu. Lykilorð: Inspired by Iceland, markaðsátak, markaðsstofur landshlutanna.