Staðarval milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins : mismunur á rekstrarkostnaði fyrirtækja milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins með tilliti til launa- og húsnæðiskostnaðar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Staðarval fyrirtækja er mikilvægt, líta þarf til ýmsa þátta þegar ákvörðun um það er tekið. Horfa þarf á þætti líkt og vinnuafl á svæðinu, flutningskerfi, viðhorf samfélagsins, landfræðileg einkenni og veður, framboð á landi, framboð á h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Daði Freyr Einarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/830
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Staðarval fyrirtækja er mikilvægt, líta þarf til ýmsa þátta þegar ákvörðun um það er tekið. Horfa þarf á þætti líkt og vinnuafl á svæðinu, flutningskerfi, viðhorf samfélagsins, landfræðileg einkenni og veður, framboð á landi, framboð á hentugu húsnæði o.s.frv. Þessa þætti verða fyrirtæki að vega og meta, því þeir hafa mismunandi vægi meðal fyrirtækja þegar kemur að staðarvali. Ef slæm ákvörðun er tekin getur það haft í för með sér að kostnaður verður meiri en reiknað var með og/eða að fyrirtæki missi samkeppnisforskot sitt. Þess vegna er mjög mikilvægt að skoða vel alla áhrifaþætti. Verkefnið fólst í því að kanna mismun á rekstrarkostnaði fyrirtækja milli höfuðborgarsvæðis og Akureyrar með tilliti til launa- og húsnæðiskostnaðar. Í ljós kom að mun lægra verð er á húsnæði á Akureyri heldur en á höfuðborgarsvæðinu, gat munurinn verið næstum 50%. Skoðaðar voru árstekjur starfsmanna í iðnaði, verslun og fjármálaþjónustu, í ljós kom að töluverður munur er á tekjum milli svæðana, í þessum þremur starfsgreinum voru launin lægri á Akureyri heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Þarafleiðandi er þónokkur munur á rekstrarkostnaði fyrirtækja í sambandi við launa- og húsnæðiskostnað á þessum tveimur svæðum. Ekki er hægt að taka afstöðu til þess hvor staðurinn sé hentugri fyrir fyrirtæki vegna þess að ekki voru rannsakaðir allir þeir þættir sem hafa áhrif á staðarval, en í ljós kemur að launa- og húnæðiskostnaður er lægri á Akureyri heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Fimm lykilorð: • Staðarval • Launakostnaður • Húsnæðiskostnaður • Akureyri • Höfuðborgarsvæðið