Félagsráðgjöf í grunnskólum. Aðkoma félagsráðgjafa að persónulegri ráðgjöf í skólum

Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er félagsráðgjöf á fræðslu- og skólasviði þar sem markmiðið er að kanna aðkomu félagsráðgjafa að persónulegri ráðgjöf í grunnskólum landsins. Í nútímasamfélagi eyða börn mun meiri tíma í skólanum en áður, félagsleg vandamál eru orðin fleiri og einelti orðið mun s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Halla Ingólfsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8124
Description
Summary:Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er félagsráðgjöf á fræðslu- og skólasviði þar sem markmiðið er að kanna aðkomu félagsráðgjafa að persónulegri ráðgjöf í grunnskólum landsins. Í nútímasamfélagi eyða börn mun meiri tíma í skólanum en áður, félagsleg vandamál eru orðin fleiri og einelti orðið mun sýnilegra. Verksvið félagsráðgjafa í grunnskólum nær yfir mörg og margvísleg málefni sem snertir skólasamfélagið í heild. Fjallað verður almennt um sögu skólafélagsráðgjafar á Íslandi, lög og reglugerðir sem tengjast málefninu, helstu verkefni persónulegrar ráðgjafar og mikilvægi hennar í skólakerfinu. Þá verður fjallað um nám félagsráðgjafa annars vegar og nám náms- og starfsráðgjafa hins vegar. Nám í félagsráðgjöf er yfirgripsmikið, fjölbreytt og krefjandi þar sem farið er inn á mikilvæg svið sem snúa að félagslegum vandamálum, barnavernd, löggjöfinni og félagslegri ráðgjöf. Í námi og starfi er áherslan lögð á heildarsýn sem er rauði þráðurinn í allri vinnu félagsráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafar starfa í grunnskólum landsins lögum samkvæmt og veita þá ráðgjöf sem nemendur sækjast eftir. Rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi í tengslum við starfssvið skólastjóra, kennara og náms- og starfsráðgjafa sem tengjast viðfangsefni ritgerðarinnar sýna að mikilvægi félagsráðgjafa í skólum er augljóst ef horft er til menntunar starfstéttarinnar, kunnáttu þeirra og þjálfunar. The main subject of this thesis is social work in the field of school and education where the main goal is to examine the approach of social workers in the cases of personal counseling in elementary schools in Iceland. In today’s society children spend more time than before in school; social problems have increased and bullying has become more visible. The tasks of social workers in elementary schools cover various assignments connected to the school society as a whole. In general, the history of student counseling will be discussed, the laws and regulations that are connected to the topic, as well as the predominant tasks of personal counseling ...