Geðfatlaðir, afbrot og úrræði

Geðheilsa felst í hugsunum okkar, tilfinningum og hvernig við tengjumst öðrum einstaklingum. Allir geta þjáðst af einkennum geðrænna vandkvæða og er talið að tæplega fjórðungur íbúa vestrænna ríkja glími við geðheilbrigðisvanda. Ef tekið er mið af Íslendingum er talið að fjórði til fimmti hver einst...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Tinna Guttormsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/8123
Description
Summary:Geðheilsa felst í hugsunum okkar, tilfinningum og hvernig við tengjumst öðrum einstaklingum. Allir geta þjáðst af einkennum geðrænna vandkvæða og er talið að tæplega fjórðungur íbúa vestrænna ríkja glími við geðheilbrigðisvanda. Ef tekið er mið af Íslendingum er talið að fjórði til fimmti hver einstaklingur upplifi einkenni geðraskana einhvern tímann á ævinni. Ritgerðin er byggð á heimildum og er markmið hennar að varpa ljósi á þær helstu geðfatlanir sem geðfatlaðir eiga við að etja og skilgreiningar þeirra. Auk þess verður farið yfir helstu úrræði sem eru fyrir hendi innan fangelsa sem og út í samfélaginu fyrir þennan sértæka hóp skjólstæðinga. Rannsóknarspurningarnar sem leitast verður við að svara eru eftirfarandi: Er samband á milli ákveðinna geðraskana og afbrotahegðunar og eru úrræði í samfélaginu og í fangelsum fullnægjandi fyrir þennan sértæka hóp afbrotamanna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að þær geðraskanir sem hafa samkvæmt rannsóknum mest áhrif á afbrotahegðun eru geðklofi, siðblinda, andfélagslegur persónuleiki, jaðarpersónuleikaröskun og þunglyndi. Talið er að 10-15% þeirra sem dveljast í fangelsum um heim allan þjást af alvarlegum geðröskunum. Einnig hafa rannsóknir sýnt tengsl eru á milli tíðni innlagna á geðdeild og fjölda einstaklinga í fangelsum. Þegar innlögnum á geðdeild fjölgar, þá dregur úr fjölda fanga í fangelsum og öfugt. Síafbrotahegðun geðfatlaðra afbrotamanna er staðreynd og talið er að endurtekin frávikshegðun sé hróp á faglega geðheilbrigðisaðstoð. Úrræðum fyrir þennan hóp eru mjög ábótavant í fengelsum sem og eftir að afplánun lýkur . Mental health is in our thoughts, feelings and how we affiliate with other people. Anyone can suffer from symptoms of mental problems and in excess of quarter of western countries populations are believed to fights this disease. In Iceland every fourth or fifth person is expected to experience symptoms of mental disorder at some time in their life. This paper is based on references and it’s aims are to highlight the main mental illness that ...