Vinnuþrælkun barna

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Vinnuþrælkun barna er útbreitt vandamál í heiminum í dag, sérstaklega í hinum vanþróuðu ríkjum Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku. Hin þróuðu iðnríki fara þó ekki varhluta af þessu vandamáli. Samkvæmt tölum frá Alþjóðavinnumálastofnun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birna Ágústsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/783
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Vinnuþrælkun barna er útbreitt vandamál í heiminum í dag, sérstaklega í hinum vanþróuðu ríkjum Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku. Hin þróuðu iðnríki fara þó ekki varhluta af þessu vandamáli. Samkvæmt tölum frá Alþjóðavinnumálastofnuninni ( skammstöfun ILO) sem birtust 2006, áætlaði hún að fjöldi vinnandi barna árið 2004 hefði verið um 218 milljónir og að meira en 60% af þessum börnum væru hneppt í vinnuþrælkun af verstu gerð. Á síðastliðnum tveim áratugum hefur orðið mikil vitundarvakning og athygli alþjóðasamfélagsins beinist nú í auknum mæli að þessu vandamáli sem hefur verið látið afskiptalaust allt of lengi. Það er gríðarlega umfangsmikið og margir samfélagslegir þættir eru fléttaðir saman, m.a. fátækt, menntunarskortur, splundrun fjölskyldna og veikindi foreldra. Á alla þessa þætti verður því að ráðast. Börn, allt niður í 5 ára gömul eru send út á vinnumarkaðinn vegna mikillar fátæktar og oft er um munaðarlaus börn að ræða. Aðildarríki ILO gerðu með sér sáttmála um tafarlausar aðgerðir gegn og bann við, vinnuþrælkun barna af verstu gerð sem kom út árið 1999 og nefnist C182 Worst Forms of Child Labour Convention, 1999. Sérstök áætlun um hvernig sáttmálanum skuli framfylgt, sem nefnist R190 Worst Forms of Child Labour Recommendations, 1999, var einnig gefin út. Í sáttmálanum kemur fram hvaða tegund atvinnu telst hættuleg börnum samkvæmt ILO. Með staðfestingu sáttmálans, skuldbinda ríkin sig til að hefjast tafarlaust handa við að koma í veg fyrir og útrýma vinnuþrælkun barna í sinni verstu mynd. Ritgerð þessi fjallar um þetta vandamál almennt og verður leitast við að varpar ljósi á þau alþjóðalög, sáttmála og yfirlýsingar sem varða efnið.