Tómstundir eldri borgara og forvarnir : fræðslu og upplýsingavefur

Þetta verkefni er vefverkefni hýst á vefsvæði KHÍ, http://lokaverkefni.khi.is/v2006/gukristj2/. Verkefnið hefur að geyma efni um tómstundir sem forvarnir og er áherslan á fólk eldra en 60 ára. Í þessu verkefni er fjallað um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og einnig er farið yfir hvað er í boði...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðbjörg Kristjánsdóttir, Selma Olsen
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/766
Description
Summary:Þetta verkefni er vefverkefni hýst á vefsvæði KHÍ, http://lokaverkefni.khi.is/v2006/gukristj2/. Verkefnið hefur að geyma efni um tómstundir sem forvarnir og er áherslan á fólk eldra en 60 ára. Í þessu verkefni er fjallað um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og einnig er farið yfir hvað er í boði í tómstundastarfi í Reykjavík. Vefnum er fyrst og fremst ætlað að vera upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir eldri borgara en líka fyrir alla aðra sem tengjast málaflokknum á einhvern hátt og að sjálfsögðu alla sem áhuga eða gagn hafa af. Með því að hafa tengla sem vísa í þetta efni, þ.e. tómstundir og ýmis málefni sem snúa að eldri borgurum, inni á heimasíðunni er vonast til þess að eldri borgarar notfæri sér síðuna til upplýsingaöflunar. Þess er vænst að þar lesi fólk um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og mikilvægi þess að finna sér eitthvað ánægjulegt til að hafa fyrir stafni á efri árum. Ekki er almennt í kerfinu nægilega markvisst unnið með tómstundir sem forvörn eða fólki bent á mikilvægi tómstunda. Heildarsýn og markmið vantar. Með tilkomu tómstundafræðinga verður vonandi unnið þrekvirki þessum málaflokki.