Miðlunargeymar Norðurorku

Norðurorka rekur 2 miðlunargeyma í dreifikerfi hitaveitunnar á Akureyri. Neðri geymirinn, sem er staðsettur við Þórunnarstræti, er notaður sem forðabúr. Inná hann er ekki dælt gufuteppi og er því hætta á súrefnisupptöku þegar vatnshæð hans fer neðar en 88%. Til öflunar á heitu vatni hjá Norðurorku e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnaldur Birgir Magnússon 1980-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7649
Description
Summary:Norðurorka rekur 2 miðlunargeyma í dreifikerfi hitaveitunnar á Akureyri. Neðri geymirinn, sem er staðsettur við Þórunnarstræti, er notaður sem forðabúr. Inná hann er ekki dælt gufuteppi og er því hætta á súrefnisupptöku þegar vatnshæð hans fer neðar en 88%. Til öflunar á heitu vatni hjá Norðurorku eru notaðar dælur sem almennt eru reknar á afltaxta hjá dreifiaðila (Rarik) og söluaðila (Fallorka). Þar er undanskilið borholusvæðið við Glerárdal sem að er á dreifisvæði Norðurorku. Á afltaxta er mjög hagkvæm heildarnotkun, en á móti er reiknaður afltoppur fyrir árið. Afltoppi verður nánar lýst í kafla 3.2. Vegna þess hve afltoppurinn er dýr getur verið mjög kostnaðarsamt að fá yfirskot í kerfinu, sérstaklega ef hægt hefði verið að nota vatn úr miðlunargeymunum í stað þess að auka dælingu. Það vaknaði því sá áhugi að athuga hvort hagkvæmara væri að hefja dælingu á gufuteppi á neðri miðlunargeyminn, og nýta vatnið í honum til að lækka afltoppinn. Norðurorka hefur áður látið vinna fyrir sig verkefni þar sem skoðað var mögulega staðgengla á dælingu gufuteppis. Það verkefni kom til vegna þess að rekstur á gufuteppi er mjög kostnaðarsamur. Þar með verður ekki farið í að reikna út mögulegan kostnað vegna reksturs á gufuteppi hér. Í staðinn verður reiknað með hlutfallslegum kostnaði út frá stærð miðlunargeymanna. Hér verður gerð grunnrannsókn á hagkvæmni þess að skoða nánar að hefja gufuframleiðslu fyrir neðri geyminn, sem og hvort hægt sé að auka hagkvæmni núverandi reksturs með betri reglun. Útreikningar til stuðnings