Eyjakeyrsla Skeiðsfossvirkjunar

Gerðar hafa verið breytingar á línukerfi RARIK frá Skeiðsfossvirkjun að Dalvík. Lágheiðarlína sem er með 33 kV rekstrarspennu verður lögð af en í staðinn kemur nýtt jarðstrengskerfi sem felur í sér tengingu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Skeiðsfossvirkjun tengist Siglufirði, þaðan er tenging til Ó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eyþór Kári Eðvaldsson 1979-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7625
Description
Summary:Gerðar hafa verið breytingar á línukerfi RARIK frá Skeiðsfossvirkjun að Dalvík. Lágheiðarlína sem er með 33 kV rekstrarspennu verður lögð af en í staðinn kemur nýtt jarðstrengskerfi sem felur í sér tengingu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Skeiðsfossvirkjun tengist Siglufirði, þaðan er tenging til Ólafsfjarðar og frá Ólafsfirði til Dalvíkur. 66 kV tenging frá Landsneti er frá Akureyri til Dalvíkur. Í daglegum rekstri næst að tappa launafli af kerfinu inn á landsnetið. Með nýja jarðstrengskerfinu eykst launaflsframleiðslan. Í þessu verkefni verður athugað hvort Skeiðsfossvirkjun geti tekið við því launafli sem verður til í kerfinu þegar um eyjakeyrslu er að ræða, þ.e.a.s. þegar tenging við landsnetið er ekki. Slík tilfelli geta komið upp í bilana- eða viðhaldstilfellum. Þetta kerfi hefur verið keyrt í eyjakeyrslu frá Skeiðsfossvirkjun að Dalvík (Dalvík ekki meðtalin). Ef virkjunin nær ekki að eyða launaflinu sem verður til í kerfinu er hugsanleg lausn að setja upp spólur í kerfinu.