Aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum

Markmið verkefnisins er að kanna aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum á Íslandi. Valdir voru þjóðgarðarnir fjórir, Skaftafell, Snæfellsjökull, Jökulsárgljúfur og þjóðgarðurinn á Þingvöllum auk fimm annarra vinsælla ferðamannastaða, Gullfoss, Geysir, Dimmuborgir, Hraunfossar og Barnafoss. Ger...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórunn Edda Bjarnadóttir 1973-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7564
Description
Summary:Markmið verkefnisins er að kanna aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum á Íslandi. Valdir voru þjóðgarðarnir fjórir, Skaftafell, Snæfellsjökull, Jökulsárgljúfur og þjóðgarðurinn á Þingvöllum auk fimm annarra vinsælla ferðamannastaða, Gullfoss, Geysir, Dimmuborgir, Hraunfossar og Barnafoss. Gerður var listi til þess að meta skipulega aðstæður á hverjum stað. Listinn var gerður í samstarfi við fulltrúa Öryrkjabandalags Íslands og Sjálfsbjargar. Tekið var til breiddar á göngustígum, halla þeirra, yfirborðsefna, salernisaðstöðu og sérmerktra bílastæða fyrir fatlaða. Við úrvinnslu matsniðurstaðna var einnig tekið tillit til almennra reglna sem varða umhverfi fatlaðra s.s. um aðkomu að byggingum, rými og aðstöðu. Dregin eru fram það atriði laga og reglna sem varðað geta útivist og möguleika fatlaðra til hennar. Áætla má að um 14 % landsmanna hafi sérhæfða þörf frá þessu sjónarmiði (fatlaðir og aldraðir). Helstu niðurstöður athugunarinnar eru þessar: · Aðgengi reyndist vera misjafnt að svæðum og víða óviðunandi. · Mörg atriðin voru smáatriði sem koma má í veg fyrir með reglulegu eftirliti og fyrirhafnarlitlum úrbótum. · Lögð er fram tillaga að stjörnugjöf svæða með hliðsjón af aðgengi fatlaðra að náttúruverndarsvæðum landsins. · Rannsaka þarf mismunandi yfirborðsefni göngustíga með tilliti til umferðar og þarfa fatlaðra. skerpa þarf ákvæði um umhverfi og útivist í Skipulags- og byggingarlögum svo meira tillit sé tekið til þarfa fatlaðra. Fagleg umfjöllun byggingarnefnda sveitarfélaga og yfirvalda náttúruverndarsvæða verði í samráði við samtök fatlaðra eða fulltrúa þeirra (fatlaðan einstakling). Loks er hvatt til að áfram verði unnið að athugunum á þessu sviði í því skyni að bæta umhverfi og efla útivistarmöguleika sem flestra.