Skógeyjarsvæðið í Nesjum í Hornafirði. Kortlagning landbreytinga

Mikill árangur hefur náðst víða um land í uppgræðslu. Skógeyjarsvæðið í Nesjum í Hornafirði er gott dæmi um þar sem vel hefur til tekist. Eftir árhundraða, eða jafnvel mun lengri ágang Hornafjarðarfljóta var svæðið orðið sandauðn að miklu leyti. Með tilkomu þjóðvegarins, brúa og varnargarða norðan s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurður Óskar Jónsson 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7522
Description
Summary:Mikill árangur hefur náðst víða um land í uppgræðslu. Skógeyjarsvæðið í Nesjum í Hornafirði er gott dæmi um þar sem vel hefur til tekist. Eftir árhundraða, eða jafnvel mun lengri ágang Hornafjarðarfljóta var svæðið orðið sandauðn að miklu leyti. Með tilkomu þjóðvegarins, brúa og varnargarða norðan svæðisins snemma á 7. áratug síðustu aldar varð til tækifæri til að endurheimta þann gróður sem talinn er hafa verið á svæðinu fyrr á öldum. Með samstilltu átaki heimamanna, Vegagerðarinnar og Landgræðslu ríkisins var umfang ánna sunnan þjóðvegar heft með varnargörðum seint á 8. áratugnum og á fyrri hluta 9. áratugarins. Rannsóknin gengur út á að kanna hvernig útlit svæðisins hefur breyst á þeim áratugum sem liðnir eru frá tilkomu vegarins. Aðferðin felst í því að nota loftmyndir til að greina yfirborðsgerðir á svæðinu á þremur mismunandi tímum. Ártölin sem um ræðir eru 1946, 1989 og 2003. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að á öllu tímabilinu hefur hlutfall gróins lands stóraukist. Heildarstærð svæðisins er rúmlega 4.200 hektarar. Á öllu tímabilinu, 1946-2003, jókst flatarmál gróins lands úr tæplega 900 ha upp í tæplega 2.900 ha. Að sama skapi minnkaði flatarmál ógróins lands úr rúmlega 3.300 ha niður í rúmlega 1.300 ha. Niðurstaðan er því í stuttu máli sú að þær aðgerðir sem farið var í til að endurheimta þetta gróskumikla svæði hafa tekist með ágætum. Lykilorð: Landfræði, kortlagning, loftmyndatúlkun, fjarkönnun, Skógey, Hornafjörður, Hornafjarðarfljót. In many places around Iceland, good results have come from efforts in revegetation. The Skógey area in Hornafjörður in the south east of Iceland is a perfect example of a relatively successful effort. After centuries, or even a longer time, of the river Hornafjarðarfljót spreading over the whole area, it was becoming a barren wasteland of sand, water and glacial river sediments. In the early 1960s a road was laid north of the area and the rivers were controlled by dykes and bridges. Then people realized that they had a great opportunity to reclaim some of ...